Innlent

Göngukona féll í klettabelti

Erlend göngukona féll og slasaðist þegar hún var á göngu í klettabelti  við Vatnsfjörð á Barðaströnd í gærkvöldi.

Greiðlega gekk að finna konuna en björgunarsveitarmenn mátu ástand hennar svo, að ekki væri heppilegt að bera hana til byggða og aka henni langa leið á sjúkrahús, og kölluðu því  eftir aðstoð þyrlu Landhelgisgæslunnar.

Hún sótti konuna og flutti hana á slysadeild Borgarspítalans. Konan mun  ekki vera alvarlega slösuð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×