Erlent

Fjórtán þotum lagt til öryggis

Þrír manns létu lífið.
fréttablaðið/AP
Þrír manns létu lífið. fréttablaðið/AP

Rússland, AP Fjórtán rússneskar farþegaþotur af gerðinni Tu-154B hafa verið teknar úr notkun í Rússlandi meðan rannsókn stendur yfir á sprengingu sem varð í hreyfli einnar slíkrar vélar á nýjársdag.

Eldur kom upp í vélinni þegar verið var að búa hana undir flugtak á flugvelli í Surgut í vestanverðri Síberíu.

Flestir farþegar komust út úr vélinni, en þrír létu lífið og 43 særðust.- gb




Fleiri fréttir

Sjá meira


×