Erlent

Fundu 15 hauslaus lík í Mexíkó

Mexíkóskur lögreglumaður.
Mexíkóskur lögreglumaður.
Lík fimmtán karlmanna á aldrinum 15 til 25 ára fundust í morgun nærri verslunarmiðstöð í bænum Acapulco í Mexíkó. Höfuðin af mönnum höfðu öll verið skorin af. Málið er í rannsókn en talið er að það tengist eiturlyfjaheiminum. Þúsundir hafa látist síðustu ár í ofbeldi tengdu eiturlyfjum sem hefur verið stórt vandamál í landinu.

Felipe Calderon forseti landsins hefur beitt hernum til að berjast gegn vandamálinu. Ríkisstjórnin heldur því fram að árangur sé að nást í baráttunni. Gagnrýnendur ríkisstjórnarinnar segja að ofbeldið hafi bara aukist og flæði kókaíns og annara eiturlyfja til Bandaríkjanna hafi aukist.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×