Innlent

Halldór laus úr farbanni

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Halldór Kristjánsson var bankastjóri Landsbankans.
Halldór Kristjánsson var bankastjóri Landsbankans.
Halldór J. Kristjánsson, fyrrverandi bankastjóri Landsbankans, losnaði úr farbanni í gær. Hann fór af landi brott í dag, samkvæmt upplýsingum frá Friðjóni Erni Friðjónssyni verjanda hans. Friðjón segir að Halldór muni koma aftur til landsins verði eftir því óskað.

Halldór kom til landsins síðastliðinn sunnudag. Hann var úrskurðaður í farbann í þágu rannsóknar Landsbankamálsins að beiðni sérstaks saksóknara. Sérstakur saksóknari sagði í samtali við fréttastofu að búið væri að yfirheyra Halldór og því hafi ekki verið ástæða til að halda honum áfram í farbanni.

Sigurjón Þ. Árnason sem var úrskurðaður í gæsluvarðhald á föstudag í síðustu viku var látinn laus úr haldi í gær.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×