Erlent

Mandela bregst vel við meðferð

Nelson Mandela virtist frískur á úrslitaleik HM í fótbolta í Suður-Afríku í fyrra.Nordicphotos/AFP
Nelson Mandela virtist frískur á úrslitaleik HM í fótbolta í Suður-Afríku í fyrra.Nordicphotos/AFP

Læknar Nelsons Mandela segja að hann bregðist vel við meðferð og sé á batavegi. Mandela, sem er 92 ára, var lagður inn á spítala í Jóhannesarborg í Suður-Afríku vegna sýkingar í lungum, en var útskrifaður á föstudag.

Læknar sem sinnt hafa Mandela kvarta yfir ágangi gesta og biðja um að Mandela fái frið til að ná sér af sýkingunni, að því er fram kemur á vef fréttastöðvarinnar CNN.- bj




Fleiri fréttir

Sjá meira


×