Innlent

Björgunarsveitir kallaðar út í nótt vegna veðursins

Björgunarsveitir voru kallaðar út á Suðurnesjum upp úr klukkan eitt í nótt til að aðstoða ökumenn í föstum bílum, eða bílum sem höfðu runnið útaf í hálku og hvassviðri.

Um tíma snjóðaði og blés í senn á Suðurnesjunum með miklum skafrenningi, en svo dró úr vindi og ofankomu þegar leið á nóttina.

Það var líka hvasst um tíma í Vestmannaeyjum og inn á Suðurströndina og voru björgunarsveitarmenn kallaðir út til að hemja járnplötur á þaki húss á Eyararbakka. Vind lægði á þessum slóðum undir morgun.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×