Innlent

Tvö fíkniefnamál í Vestmannaeyjum

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Frá Vestmannaeyjum. Mynd/ HARI.
Frá Vestmannaeyjum. Mynd/ HARI.
Tvö fíkniefnamál komu upp í vikunni og en í öðru tilvikinu var um að ræða haldlagningu á um 50 gr. af maríhúana en efnin fundust í gistiheimili í bænum þann 26. ágúst sl.  Fjórir aðilar voru handteknir í tengslum við rannsóknina og játaði einn af þeim að vera eigandi að efnunum.  Málið telst að mestu upplýst.

Að morgni 27. ágúst sl. fannst ætlað amfetamín í leigubifreið en ökumaður leigubifreiðarinnar kom með efnið á lögreglustöðina en hann mun hafa fundið efnið í aftursæti bifreiðarinnar.  Ekki er vitað hver er eigandi að efnunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×