Erlent

UNIFEM verður UN Women

Michelle Bachelet er framkvæmdastýra UN Women
Michelle Bachelet er framkvæmdastýra UN Women
Þann 1. janúar sameinaðist UNIFEM þremurm systrafélögum sínum innan Sameinuðu þjóðanna og hlaut hin sameinaða stofnun nafnið Jafnréttisstofnun Sþ eða UN Women (United Nations Entity for Gender Equality and the Empowerment of Women).

Þetta er stórt skref fyrir stofnunina og tíðindi innan alþjóðasamfélagsins en með breytingunni fá málefni kvenna aukið vægi innan Sameinuðu þjóðanna.

Michelle Bachelet, fyrrum forseti Chile, tók við starfi framkvæmdastýru stofnunarinnar og er óhætt að segja að mikil von sé bundin við ráðningu hennar. Henni hefur verið falið það víðamikla verkefni að tryggja að stofnunin fái tvöfalt fjárframlag frá aðildarríkjum Sameinuðu þjóðanna til að gera UN Women kleyft að takast á við þau viðamiklu verkefni sem stofnunin stendur frammi fyrir.

Helstu áherslur UN Women verða áfram afnám ofbeldis gegn konum, aukin mannréttindi, friður og öryggi, leiðtogaþjálfun og þátttaka kvenna í atvinnulífinu, efnahagsleg valdefling kvenna ásamt því að vinna áfram að þúsaldarmarkmiðunum.

UN Women á Íslandi vinnur nú hörðum höndum að nýrri heimasíðu sem verður tilbúin á næstu dögum.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×