Erlent

Douglas laus við krabbameinsæxli

Óli Tynes skrifar
Michael Douglas.
Michael Douglas.

Leikarinn Michael Douglas hefur upplýst að hann sé laus við krabbameinsæxli í hálsi sem hann hefur barist við undanfarin misseri. Í spjallþættinum Today sagði Douglas að þótt æxlið sé horfið verði hann undir nákvæmu eftirliti næstu mánuðina. Douglas hefur látið nokkuð á sjá enda lést um 15 kíló í krabbameinsmeðferðinni.

Hann segist nú önnum kafinn við að ná kjörþyngd, með því að éta eins og svín, eins og hann orðaði það. Hann er einnig byrjaður í ræktinni til þess að búa sig undir næsta kvikmyndahlutverk. Þar kemur hann fram í hlutverki píanóleikarans Liberace.












Fleiri fréttir

Sjá meira


×