Innlent

Hæstiréttur staðfestir gæsluvarðhald yfir skotárásarmanni

Hæstiréttur staðfesti gæsluvarðhaldsúrskurð í dag yfir einum af fjórum mönnum sem eru í gæsluvarðhaldi grunaðir um skotárás á aðfangadegi.

Mennirnir tóku þátt í skotárás í Bústaðahverfi á aðfangadag og voru úrskurðaðir í gæsluvarðhald til 15. febrúar. Einn þeirra kærði úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur Hæstaréttar sem nú hefur staðfest varðhaldið. Ríkissaksóknari mun á næstu dögum gefa út ákæru á hendur þeim.

Mennirnir voru handteknir eftir skotárásina og hafa játað aðild sína að málinu. Þeir eru á þrítugs- og fertugsaldri og hafa allir áður komið við sögu hjá lögreglu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×