Innlent

Brotist inn í 66°Norður í Hafnarfirði í nótt

Brotist var inn í iðnaðarhús 66°Norður í Hraununum í Hafnarfirði í nótt, en þar er meðal annars geymdur dýr útivistarfatnaður.

Þjófurinn, eða þjófarnir stálu fatnaði úr þeim birgðum, en ekki er ljóst hversu miklu. Þeir komust óséðir undan.

Að öðru leiti virðast innbrotsþjófar hafa setið á strák sínum í nótt, eins og oft gerist þegar kalt er í veðri.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×