Neytendur óánægðir með óverðmerktar matvörur í Bónus 3. febrúar 2011 11:27 Guðmundur Marteinsson, framkvæmdastjóri Bónuss.
Ekki eru lengur verðmerkingar á kjúklingi í verslunum Bónuss. Ástæðan er úrskurður Samkeppniseftirlitsins frá í desember á síðasta ári þar sem verslunum Haga var bannað að taka við kjötvörum merktum með smásöluverði. Óánægður viðskiptavinur hafði samband við Vísi og sagðist hafa lent í stökustu vandræðum í verslun Bónus í gær. Kjúklingurinn hefði ekki verið verðmerktur og hann hefði lent í vandræðum með að reikna út verðið út frá uppgefnu kílóverði. Hann sagðist undrast að neytendur mættu ekki vita hvað varan kostaði fyrr en á kassann væri komið. Ástæðan fyrir þessu er úrskurður Samkeppniseftirlitsins frá í desember. Þar var sýnt frá á viðtækt samráð sjö kjötvinnslufyrirtækja og Haga í því skyni að blekkja neytendur. Vörur hafi verið auglýstar á afslætti í búðinni en verðið ákveðið af Högum og kjötvinnslufyrirtækjunum og áður en varan kom í búðina. Lagt var bann við því að verslanir Haga gefi upp afslátt á kjötvörum nema um raunverulega lækkun frá gildandi smásöluverði sé að ræða. Högum var gert að greiða 270 milljónir króna í sekt en bannið við verðmerkingunum tekur gildi þann 1. júní. Guðmundur Marteinsson, framkvæmdastjóri Bónus, segir ástæðuna fyrir því að kjúklingurinn sé nú óverðmerktur úrskurður Samkeppniseftirlitisins. „Við erum að búa okkur undir það sem gerist þann 1. júní. Við erum að reyna að finna út leið til að gera þetta læsilegt fyrir okkar viðskiptavini." Guðmundur segir úrskurðinn hafa slæm áhrif fyrir neytendur. Nú þurfi kúnninn að reikna út í huganum hvað vörur kosti í staðinn fyrir að þær séu verðmerktar fyrirfram. Það séu fleiri vörur en bara kjúklingur sem sé nú óverðmerktur. „Samkeppniseftirlitið vill að við setjum upp verðskanna inn í kælum en það kostar fleiri milljónir að setja slíkt upp," segir Guðmundur og bendir á að það hafi í för með sér kostnaðarauka. Hann gagrýnir úrskurð Samkeppniseftirlitsins og segir hann skapa vandamál bæði fyrir neytendur og búðirnar sjálfar.
Mest lesið Þakklát fyrir þrjósku hundsins Innlent Gætu þurft að loka Fjölskyldulandi Innlent Einbeitti sér alfarið að Svedda Tönn Innlent „Hélt ég væri að fara að drepast. Þú heyrir i sprengjunni koma“ Erlent „Ég held að það þurfi að koma böndum á þetta“ Innlent Handtökuskipun gefin út vegna Nord Stream skemmdarverkanna Erlent Milla hætt hjá Willum Innlent Hamas segjast ekki munu senda fulltrúa til viðræðna á morgun Erlent „Þetta gæti bara byrjað hvenær sem er“ Innlent Íbúi á sjötugsaldri lést í brunanum við Amtmannsstíg Innlent Fleiri fréttir Heildarakstur í þjóðvegakerfi nærri tvöfaldast á tuttugu árum „Ég held að það þurfi að koma böndum á þetta“ Þakklát fyrir þrjósku hundsins Gætu þurft að loka Fjölskyldulandi „Þetta gæti bara byrjað hvenær sem er“ Einbeitti sér alfarið að Svedda Tönn Finnst líklegt að vindorka verði þriðja stoðin í orkukerfi landsins Íbúi á sjötugsaldri lést í brunanum við Amtmannsstíg Milla hætt hjá Willum Fimm milljarðar í húsnæðisúrræði fyrir hælisleitendur Lögreglan leitar að stolnum Volvo Svipaður hlátur á öllum upptökunum Viðskiptaráð biður ráðuneytið um niðurstöður námsmats Telja áform um uppbyggingu vindmyllugarða verulegt áhyggjuefni Skiptu um síma og símkort eins og nærbuxur til að hylja slóð sína Starfsmenn Veðurstofunnar í biðstöðu og kvikusöfnun heldur áfram Sex sóttu um embætti forstjóra Náttúrufræðistofnunar Bruni í miðbænum og Landvernd slæst við vindmyllur Mikill og dökkur reykur í íbúðinni Einn fluttur á slysadeild eftir bruna á Amtmannsstíg „Það er öllum brögðum beitt til að koma vörunum sem víðast“ Þurfi að sýna skynsemi við uppbyggingu vindorkuvera Fluttur á sjúkrahús eftir að bát hvolfdi Ekki óyggjandi sönnun fyrir meintu dýraníði blóðbónda að mati MAST Hringveginum lokað við Borgarnes vegna elds í vörubíl Malarvagn kramdi bílstjórahús flutningabíls Ferðamenn í báðum bifreiðum Landsvirkjun skrefi nær því að reisa fyrsta vindorkuverið Rannsaka hugsanleg veikindi af völdum E.coli Makaði tómatsósu á útidyrahurð nágranna sinna Sjá meira