Formaður Sjálfstæðisflokksins segist finna fyrir stuðningi Þorbjörn Þórðarson skrifar 3. febrúar 2011 19:17
Flestir þingmenn Sjálfstæðisflokksins styðja Icesave-samningana. Þá hefur óánægja meðal flokksmanna ekki birst í mörgum úrsögnum úr flokknum þótt andstaðan sé hörð á veraldarvefnum. Formaður flokksins segist finna fyrir miklum stuðningi. Þingflokkur Sjálfstæðisflokksins skiptist í tvær fylkingar í Icesave-málinu. Það er hópur þeirra sem munu styðja Icesave-samningana og fylgja forystu flokksins að máli og hins vegar þeir sem eru á móti eða vilja ekki gefa upp afstöðu sína. Meirihluti þingflokksins styður Icesave-samningana og sást það vel í atkvæðagreiðslu um lok annarrar umræðu í dag þegar níu þingmenn flokksins greiddu atkvæði með því að færa málið í þriðju umræðu. Fjórir þingmenn flokksins sátu hjá, þeir Birgir Ármannsson, Pétur Blöndal, Sigurður Kári Kristjánsson og Guðlaugur Þór Þórðarson. Unnur Brá Konráðsdóttir var eini þingmaðurinn sem greiddi atkvæði gegn því að málið færi til þriðju umræðu. Tveir þingmenn voru fjarverandi, en þau styðja bæði samningana. Ragnheiður Elín er formaður þingflokksins og Kristján Þór situr í fjárlaganefnd og hefur lýst yfir stuðningi við nýju samningana. Nokkur óánægja er meðal flokksmanna og hún birtist sérstaklega á internetinu. Þessi óánægja birtist hins vegar ekki í úrsögnum úr flokknum, því samkvæmt upplýsingum frá skrifstofu Sjálfstæðisflokksins í Valhöll höfðu aðeins rúmlega þrjátíu manns sagt sig úr flokknum um miðjan dag í dag, en alls eru félagar alls rúmlega fimmtíu þúsund talsins. Bjarni, fyrir utan þessa óánægju sem birtist á netinu, hefurðu orðið var við mikla óánægju meðal sjálfstæðismanna og þinna stuðningsmanna? „Bæði og, það hafa auðvitað margir lýst þeirri skoðun sinni að þetta sé gegn þeirra sannfæringu, en það hafa líka mjög margir haft samband, bæði í gegnum síma og tölvupóst og lýst mikilli ánægju með það að við höfum tekið þessa ábyrgu afstöðu og styðja hana heils hugar," segir Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins. Illugi Gunnarsson, fyrrverandi formaður þingflokksins sem er í leyfi frá þingstörfum, sagði í samtali við Stöð 2 í dag að hann styddi formann flokksins og forystu hans í málinu. thorbjorn@stod2.is
Mest lesið Þakklát fyrir þrjósku hundsins Innlent Gætu þurft að loka Fjölskyldulandi Innlent Einbeitti sér alfarið að Svedda Tönn Innlent „Hélt ég væri að fara að drepast. Þú heyrir i sprengjunni koma“ Erlent „Ég held að það þurfi að koma böndum á þetta“ Innlent Handtökuskipun gefin út vegna Nord Stream skemmdarverkanna Erlent Milla hætt hjá Willum Innlent Hamas segjast ekki munu senda fulltrúa til viðræðna á morgun Erlent „Þetta gæti bara byrjað hvenær sem er“ Innlent Íbúi á sjötugsaldri lést í brunanum við Amtmannsstíg Innlent Fleiri fréttir Heildarakstur í þjóðvegakerfi nærri tvöfaldast á tuttugu árum „Ég held að það þurfi að koma böndum á þetta“ Þakklát fyrir þrjósku hundsins Gætu þurft að loka Fjölskyldulandi „Þetta gæti bara byrjað hvenær sem er“ Einbeitti sér alfarið að Svedda Tönn Finnst líklegt að vindorka verði þriðja stoðin í orkukerfi landsins Íbúi á sjötugsaldri lést í brunanum við Amtmannsstíg Milla hætt hjá Willum Fimm milljarðar í húsnæðisúrræði fyrir hælisleitendur Lögreglan leitar að stolnum Volvo Svipaður hlátur á öllum upptökunum Viðskiptaráð biður ráðuneytið um niðurstöður námsmats Telja áform um uppbyggingu vindmyllugarða verulegt áhyggjuefni Skiptu um síma og símkort eins og nærbuxur til að hylja slóð sína Starfsmenn Veðurstofunnar í biðstöðu og kvikusöfnun heldur áfram Sex sóttu um embætti forstjóra Náttúrufræðistofnunar Bruni í miðbænum og Landvernd slæst við vindmyllur Mikill og dökkur reykur í íbúðinni Einn fluttur á slysadeild eftir bruna á Amtmannsstíg „Það er öllum brögðum beitt til að koma vörunum sem víðast“ Þurfi að sýna skynsemi við uppbyggingu vindorkuvera Fluttur á sjúkrahús eftir að bát hvolfdi Ekki óyggjandi sönnun fyrir meintu dýraníði blóðbónda að mati MAST Hringveginum lokað við Borgarnes vegna elds í vörubíl Malarvagn kramdi bílstjórahús flutningabíls Ferðamenn í báðum bifreiðum Landsvirkjun skrefi nær því að reisa fyrsta vindorkuverið Rannsaka hugsanleg veikindi af völdum E.coli Makaði tómatsósu á útidyrahurð nágranna sinna Sjá meira