Fjármálaráðuneytið leiðréttir Sigmund Davíð 3. febrúar 2011 12:41 Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, fór með rangt mál í aðsendri grein í Morgunblaðinu í dag um Icesave. í greininni gagnrýnir Sigmundur þá ákvörðun að samþykkju Icesave og segir margar fráleitar staðhæfingar hafa fallið um kostnaðinn við að greiða ekki Icesave. „Sú umræða er eitthvert besta dæmið um hvernig stjórnmálaumræða fer fram með innistæðulausum frösum fremur en rökum." Í leiðréttingu frá fjármálaráðuneytinu er vitnað í grein Sigmundar þar sem hann segir: „Landsbankinn telur heildsölulán (innstæður sveitarfélaga, stofnana osfrv.) ekki til forgangskrafna. Glitnir flokkar þau hins vegar sem forgangskröfur. Ef Landsbankinn tapar yfirstandandi málaferlum vegna þessa bætast yfir 170 milljarðar, á Seðlabankagengi, við kröfurnar og hvað ætli það verði mikið ef krónan fellur?" Fjármálaeftirlitið segist vilja koma því á framfæri „að hið rétta er að slitastjórn Landsbankans hefur viðurkennt forgang heildsöluinnlána að fjárhæð um 145 milljarðar króna." „Í mati samninganefndar Íslands á kostnaði við Icesave-samninginn hefur ætíð verið miðað við að þessi innlán yrðu flokkuð sem forgangskröfur. Einnig er rangt í umræddri grein að Glitnir flokki þessar kröfur sem forgangskröfur, það hefur slitastjórn hans einmitt ekki gert (gagnstætt slitastjórn Landsbankans). Þetta er því umdeilt lögfræðilegt álitaefni. Færi svo, að dómstólar kæmust að þeirri niðurstöðu að þessar kröfur nytu ekki forgangs líkt og almenn innlán, myndi það þýða að heimtur upp í forgangskröfur myndu aukast og þar með yrði kostnaður ríkisins vegna samningsins og að meðtöldum vöxtum enginn, sé miðað við forsendur samninganefndarinnar. Kostnaðarmat samninganefndarinnar miðar við óhagstæðustu niðurstöðu um þetta álitaefni," segir í leiðréttingunni.
Mest lesið Þakklát fyrir þrjósku hundsins Innlent „Hélt ég væri að fara að drepast. Þú heyrir i sprengjunni koma“ Erlent Greiddu 47 milljónir fyrir 175 hjálma fyrir leiðtogafundinn Innlent Gætu þurft að loka Fjölskyldulandi Innlent Einbeitti sér alfarið að Svedda Tönn Innlent „Ég held að það þurfi að koma böndum á þetta“ Innlent Handtökuskipun gefin út vegna Nord Stream skemmdarverkanna Erlent Skoða að kæra útgáfu virkjanaleyfis fyrir Búrfellslund Innlent Milla hætt hjá Willum Innlent Hamas segjast ekki munu senda fulltrúa til viðræðna á morgun Erlent Fleiri fréttir Skoða að kæra útgáfu virkjanaleyfis fyrir Búrfellslund Heilsugæslan skipuleggur sýnatökur vegna e. coli mengunar Greiddu 47 milljónir fyrir 175 hjálma fyrir leiðtogafundinn Heildarakstur í þjóðvegakerfi nærri tvöfaldast á tuttugu árum „Ég held að það þurfi að koma böndum á þetta“ Þakklát fyrir þrjósku hundsins Gætu þurft að loka Fjölskyldulandi „Þetta gæti bara byrjað hvenær sem er“ Einbeitti sér alfarið að Svedda Tönn Finnst líklegt að vindorka verði þriðja stoðin í orkukerfi landsins Íbúi á sjötugsaldri lést í brunanum við Amtmannsstíg Milla hætt hjá Willum Fimm milljarðar í húsnæðisúrræði fyrir hælisleitendur Lögreglan leitar að stolnum Volvo Svipaður hlátur á öllum upptökunum Viðskiptaráð biður ráðuneytið um niðurstöður námsmats Telja áform um uppbyggingu vindmyllugarða verulegt áhyggjuefni Skiptu um síma og símkort eins og nærbuxur til að hylja slóð sína Starfsmenn Veðurstofunnar í biðstöðu og kvikusöfnun heldur áfram Sex sóttu um embætti forstjóra Náttúrufræðistofnunar Bruni í miðbænum og Landvernd slæst við vindmyllur Mikill og dökkur reykur í íbúðinni Einn fluttur á slysadeild eftir bruna á Amtmannsstíg „Það er öllum brögðum beitt til að koma vörunum sem víðast“ Þurfi að sýna skynsemi við uppbyggingu vindorkuvera Fluttur á sjúkrahús eftir að bát hvolfdi Ekki óyggjandi sönnun fyrir meintu dýraníði blóðbónda að mati MAST Hringveginum lokað við Borgarnes vegna elds í vörubíl Malarvagn kramdi bílstjórahús flutningabíls Ferðamenn í báðum bifreiðum Sjá meira