Stækkun verndarsvæðis fugla í Andakíl 3. febrúar 2011 10:44 Svandís Svavarsdóttir, umhverfisráðherra.
Svandís Svavarsdótti umhverfisráðherra undirritaði í gær friðlýsingu búsvæðis fyrir fugla í Andakíl í Borgarfirði. Landeigendur þrettán jarða í Andakíl og sveitarfélagið Borgarbyggð standa að friðlýsingunni. Um er að ræða stækkun svæðis sem var friðlýst árið 2002. Þá var öll Hvanneyrarjörðin friðlýst sem búsvæði blesgæsar, alls 1.744 hektarar. Eftir stækkun verður friðlýsta svæðið 3.086 hektarar. Stækkunin er mikilvægt skref í verndun og endurheimt votlendis hér á landi með tilliti til verndunar fugla og bindingar gróðurhúsalofttegunda. Svæðið er mikilvægasti viðkomustaður Blesgæsar vor og haust á leið hennar til og frá varpstöðvum sínum á Grænlandi. Svæðið hefur því verulegt alþjóðlegt verndargildi. Með friðlýsingu er leitast við að tryggja að vistfræðilegir eiginleikar svæðisins haldist eða bætist og að það verði aðgengilegt fyrir gesti. Á verndarsvæðinu mun hefðbundin nýting haldist svo sem verið hefur. Umhverfisstofnun hefur gert samkomulag við Votlendissetur Landbúnaðarháskólann á Hvanneyri um umsjón með svæðinu. Nú er unnið að því að tilnefna friðlýsta svæðið í Andakíl á lista Ramsarsamningsins um vernd votlendis, en í gær var haldið upp á að 40 ár eru liðin frá gerð Ramsarsamningsins um vernd votlendis. Einnig bar friðlýsinguna upp á Alþjóðlega votlendisdaginn, sem haldinn er 2. febrúar ár hvert. Hér á landi eru þrjú svæði á Ramsarlistanum: Mývatn og Laxá, Þjórsárver og Grunnafjörður. Tvö svæði til viðbótar hafa þegar verið tilefnd á lista samningsins, þau eru Guðlaugstungur og Snæfells- og Eyjabakkasvæðið.
Mest lesið Þakklát fyrir þrjósku hundsins Innlent „Hélt ég væri að fara að drepast. Þú heyrir i sprengjunni koma“ Erlent Greiddu 47 milljónir fyrir 175 hjálma fyrir leiðtogafundinn Innlent Gætu þurft að loka Fjölskyldulandi Innlent Einbeitti sér alfarið að Svedda Tönn Innlent „Ég held að það þurfi að koma böndum á þetta“ Innlent Handtökuskipun gefin út vegna Nord Stream skemmdarverkanna Erlent Skoða að kæra útgáfu virkjanaleyfis fyrir Búrfellslund Innlent Milla hætt hjá Willum Innlent Hamas segjast ekki munu senda fulltrúa til viðræðna á morgun Erlent Fleiri fréttir Skoða að kæra útgáfu virkjanaleyfis fyrir Búrfellslund Heilsugæslan skipuleggur sýnatökur vegna e. coli mengunar Greiddu 47 milljónir fyrir 175 hjálma fyrir leiðtogafundinn Heildarakstur í þjóðvegakerfi nærri tvöfaldast á tuttugu árum „Ég held að það þurfi að koma böndum á þetta“ Þakklát fyrir þrjósku hundsins Gætu þurft að loka Fjölskyldulandi „Þetta gæti bara byrjað hvenær sem er“ Einbeitti sér alfarið að Svedda Tönn Finnst líklegt að vindorka verði þriðja stoðin í orkukerfi landsins Íbúi á sjötugsaldri lést í brunanum við Amtmannsstíg Milla hætt hjá Willum Fimm milljarðar í húsnæðisúrræði fyrir hælisleitendur Lögreglan leitar að stolnum Volvo Svipaður hlátur á öllum upptökunum Viðskiptaráð biður ráðuneytið um niðurstöður námsmats Telja áform um uppbyggingu vindmyllugarða verulegt áhyggjuefni Skiptu um síma og símkort eins og nærbuxur til að hylja slóð sína Starfsmenn Veðurstofunnar í biðstöðu og kvikusöfnun heldur áfram Sex sóttu um embætti forstjóra Náttúrufræðistofnunar Bruni í miðbænum og Landvernd slæst við vindmyllur Mikill og dökkur reykur í íbúðinni Einn fluttur á slysadeild eftir bruna á Amtmannsstíg „Það er öllum brögðum beitt til að koma vörunum sem víðast“ Þurfi að sýna skynsemi við uppbyggingu vindorkuvera Fluttur á sjúkrahús eftir að bát hvolfdi Ekki óyggjandi sönnun fyrir meintu dýraníði blóðbónda að mati MAST Hringveginum lokað við Borgarnes vegna elds í vörubíl Malarvagn kramdi bílstjórahús flutningabíls Ferðamenn í báðum bifreiðum Sjá meira