119 krefjast bóta vegna vistunar í Breiðavík 3. febrúar 2011 12:28 Erna Agnarsdóttir er formaður Samtaka vistheimilabarna
Alls fær sýslumaðurinn á Siglufirði 119 kröfur um sanngirnisbætur frá fyrrum vistmönnum Breiðavíkur og erfingjum látinna vistmanna Breiðavíkur. Vistmenn á Breiðavík voru alls 158 og því koma fram bótakröfur vegna 75% þeirra. Innköllun krafna vegna vistmanna Kumbaravogs og Heyrnleysingjaskólans hefst í dag, 3. febrúar. Viðtöl hófust hjá tengilið vistheimila vegna Breiðavíkurbarna þann 11. október síðastliðinn og síðasta krafan fylltist út 26. janúar. Alls höfðu 191 einstaklingar hringt og rætt við tengilið til að fá ýmsar upplýsingar og bóka viðtalstíma. Af 119 kröfum á umsóknareyðublaði voru 17 frá erfingjum látinna Breiðvíkinga, en alls eru látnir Breiðvíkingar (tímabilsins 1953-1980) nokkuð á fjórða tuginn. Þetta kemur fram á vef Samtaka vistheimilabarna, áður Breiðavíkursamtakanna. Auk þess að veita liðveislu vegna kröfuumsókna vann tengiliður í ýmsum öðrum málum fyrir eða vegna Breiðvíkinga; svo sem Félagsþjónustu sveitarfélaga (gert samkomulag eftir því sem mál bárust vegna stuðningsþjónustu við einstaklinga sem þess óskuðu og þurftu á að halda), sálfræðinga (sem haft hafa einstaklinga í viðtölum vegna vistunar, svo og til að koma nýjum einstaklingum í viðtöl), einstaklinga/fagmenn með sérþekkingu á þessum málaflokki, lögfræðinga vegna einstaklingsmála og ráðgjöf til lögfræðinga, samtöl við starfsmenn heimila/stofnana sem hafa með fyrrum vistmenn að gera (geðhjálp,athvörf,félagsþjónusta ofrv.), Reykjavíkurborg (starfandi er teymi starfsmanna í þessum málaflokki og er tengiliður aðili að því) og ráðuneyti málaflokksins. Fyrir utan samstarf við aðila eins og Vistheimilanefnd (Spanó-nefnd) og Breiðavíkursamtökin (nú Samtök vistheimilabarna). Innköllun krafna vegna skýrslu númer tvö er auglýst í blöðum dagsins og nær til fyrrum vistmanna Kumbaravogs (1965-1984) og Heyrnleysingjaskólans (1947-1992). Í auglýsingunni kemur fram að kröfur þurfi að berast fyrir 20. maí en annars fellur rétturinn niður. Kröfu má lýsa á eyðublaði sem er að finna á sanngirnisbætur.is eða hjá tengilið vistheimila Nú í byrjun febrúar eru 4 ár liðin frá því að málefni Breiðavíkur og fleiri heimila komust í kastljós fjölmiðlanna. Tengill: Fréttin á vef Samtaka vistheimilabarna
Mest lesið Þakklát fyrir þrjósku hundsins Innlent „Hélt ég væri að fara að drepast. Þú heyrir i sprengjunni koma“ Erlent Greiddu 47 milljónir fyrir 175 hjálma fyrir leiðtogafundinn Innlent Gætu þurft að loka Fjölskyldulandi Innlent Einbeitti sér alfarið að Svedda Tönn Innlent „Ég held að það þurfi að koma böndum á þetta“ Innlent Handtökuskipun gefin út vegna Nord Stream skemmdarverkanna Erlent Skoða að kæra útgáfu virkjanaleyfis fyrir Búrfellslund Innlent Milla hætt hjá Willum Innlent Hamas segjast ekki munu senda fulltrúa til viðræðna á morgun Erlent Fleiri fréttir Skoða að kæra útgáfu virkjanaleyfis fyrir Búrfellslund Heilsugæslan skipuleggur sýnatökur vegna e. coli mengunar Greiddu 47 milljónir fyrir 175 hjálma fyrir leiðtogafundinn Heildarakstur í þjóðvegakerfi nærri tvöfaldast á tuttugu árum „Ég held að það þurfi að koma böndum á þetta“ Þakklát fyrir þrjósku hundsins Gætu þurft að loka Fjölskyldulandi „Þetta gæti bara byrjað hvenær sem er“ Einbeitti sér alfarið að Svedda Tönn Finnst líklegt að vindorka verði þriðja stoðin í orkukerfi landsins Íbúi á sjötugsaldri lést í brunanum við Amtmannsstíg Milla hætt hjá Willum Fimm milljarðar í húsnæðisúrræði fyrir hælisleitendur Lögreglan leitar að stolnum Volvo Svipaður hlátur á öllum upptökunum Viðskiptaráð biður ráðuneytið um niðurstöður námsmats Telja áform um uppbyggingu vindmyllugarða verulegt áhyggjuefni Skiptu um síma og símkort eins og nærbuxur til að hylja slóð sína Starfsmenn Veðurstofunnar í biðstöðu og kvikusöfnun heldur áfram Sex sóttu um embætti forstjóra Náttúrufræðistofnunar Bruni í miðbænum og Landvernd slæst við vindmyllur Mikill og dökkur reykur í íbúðinni Einn fluttur á slysadeild eftir bruna á Amtmannsstíg „Það er öllum brögðum beitt til að koma vörunum sem víðast“ Þurfi að sýna skynsemi við uppbyggingu vindorkuvera Fluttur á sjúkrahús eftir að bát hvolfdi Ekki óyggjandi sönnun fyrir meintu dýraníði blóðbónda að mati MAST Hringveginum lokað við Borgarnes vegna elds í vörubíl Malarvagn kramdi bílstjórahús flutningabíls Ferðamenn í báðum bifreiðum Sjá meira