Innlent

Stúdentaráðskosningar - Fleiri framboð en minni þátttaka

Kjörsókn ekki góð hjá nemendum H.Í.
Kjörsókn ekki góð hjá nemendum H.Í.
Svo virðist sem minni þátttaka verði nú í kosningum til Stúdentaráðs en í fyrra þrátt fyrir að framboðin séu nú fleiri. Jens Fjalar Skaptason formaður Stúdentaráðs segir að tæplega 3000 manns séu nú búnir að kjósa en kjörstöðum lokar klukkan sex í dag.

„Það virðist vera minni kosningaþáttaka," segir Kolbrún Þorfinnsdóttir sem skipar 1.sæti Skrökvu. Hún telur þó að umræðan sé málefnalegri en áður. „Ætli það sé ekki okkur að þakka. Það er minna um skítkast," segir hún.

Úrslit kosninganna verða tilkynnt klukkan ellefu í kvöld. Vafalaust verður glatt á hjalla í Háskólanum en kosningavökur verða haldnar hjá öllum framboðunum í kvöld.

„Stemningin er gífurlega góð og erum við bjartsýn á að fá fimm menn inn, kosningabaráttan hefur verið málefnalegri í ár," segir Guðfinnur Sveinsson sem skipar 1. sæti á lista Röskvu.

Lilja Dögg Jónsdóttir, sem er í framboði fyrir Vöku, segist ánægð með kosningabaráttuna. „Nemendur hafa mikinn áhuga á málefnum Lín og fylgjast vel með."

Óvæntasta framboðið í ár er hið nýja Stúdentafélag Hægrimanna. Þau buðu fram á síðustu metrunum en segja kosningabaráttuna hafa gengið vel. Rúnar Nielsen, formaður hreyfingarinnar, segist þó sár yfir þeirri gagnrýni sem framboðið hafi hlotið - svo virðist sem ekki megi tengja sig við hægri vænginn í háskólanum.

„Ég tel ekki réttlátt að fá sérstaka gagnrýni fyrir að kenna sig við hægri hreyfingu og tel að umræðan hefði átt að vera heilbrigðari en hún var," segir hann.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×