Fyrst og fremst ánægjulegt fyrir ljóðið 3. febrúar 2011 20:30 Íslensku bókmenntaverðlaunin voru afhent á Bessastöðum í gær.
Blóðhófnir eftir Gerði Kristnýju og Sveppabókin eftir Helga Hallgrímsson hlutu Íslensku bókmenntaverðlaunin sem afhent voru í gær. Gerður er glöð fyrir hönd ljóðsins en Helgi segir mikið verk enn óunnið í ritun náttúrufræðirita á Íslandi. Blóðhófnir eftir Gerði Kristnýju hreppti hnossið í flokki fagurbókmennta. Hún segist ekki hafa búist við að hljóta verðlaunin. „Allar þessu góðu viðtökur sem bókin fékk komu mér á óvart. Í ljósi þeirra var ég svo sem ekki hissa yfir að bókin skyldi vera tilnefnd en ég átti ekki endilega von á að hljóta verðlaunin.“ Gerður segir það mikla upphefð að hljóta verðlaunin, ekki síst fyrir ljóðskáld. „Þetta eru merkileg verðlaun. Mér telst að þetta sé fimmta ljóðabókin sem vinnur til þeirra, allar eftir mikil merkisskáld: Stefán Hörð Grímsson, Þorstein frá Hamri, Hannes Pétursson og Ingibjörgu Haraldsdóttur. Mér er það mikill heiður að fá að fylla þeirra hóp.“ Gerður Kristný er jafnframt sjötta konan sem hlýtur Íslensku bókmenntaverðlaunin í flokki fagurbókmennta. Spurð hvort hún leggi einhverja merkingu í það gerir hún lítið úr því. „Þetta er fyrst og fremst ánægjulegt fyrir ljóðið. Starfstitillinn skáld er jú hvorukynsorð.“ Næst á dagskrá hjá Gerði er frumsýning á Ballinu á Bessastöðum í Þjóðleikhúsinu í kvöld. „Annars er ég langt komin með ljóðasafn og er að skrifa tvær skáldsögur, eina fyrir börn og eina fyrir fullorðna. Barnabókin kemur væntanlega út í haust en hinar þurfa lengri tíma.“ Helgi Hallgrímsson hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin í flokki fræðirita fyrir Sveppabókina, ítarlegt rit um sveppafræði. Helgi segir verðlaunin ánægjulegan lokapunkt á verki sem var áratugi í smíðum. Helgi byrjaði að rannsaka sveppi í kringum 1960 en byrjaði á Sveppabókinni fyrir um tuttugu árum. „Þetta hefur verið ígripavinna meðfram öðru en engu að síður mikil vinna sem liggur þarna að baki.“ Sveppabókin er þriðja náttúrufræðiritið til að hljóta Íslensku bókmenntaverðlaunin í 22 ára sögu þeirra. Spurður um stöðu náttúrufræðirita segir Helgi að hún mætti vera betri. „Það er svo margt sem vantar enn, til dæmis bækur um fléttur, mosa og þörunga. Vonandi vekja þessi verðlaun frekari áhuga á náttúrufræði meðal lesenda..“ bergsteinn@frettabladid.is
Mest lesið Þakklát fyrir þrjósku hundsins Innlent Gætu þurft að loka Fjölskyldulandi Innlent Einbeitti sér alfarið að Svedda Tönn Innlent „Hélt ég væri að fara að drepast. Þú heyrir i sprengjunni koma“ Erlent „Ég held að það þurfi að koma böndum á þetta“ Innlent Handtökuskipun gefin út vegna Nord Stream skemmdarverkanna Erlent Milla hætt hjá Willum Innlent Hamas segjast ekki munu senda fulltrúa til viðræðna á morgun Erlent „Þetta gæti bara byrjað hvenær sem er“ Innlent Íbúi á sjötugsaldri lést í brunanum við Amtmannsstíg Innlent Fleiri fréttir Heildarakstur í þjóðvegakerfi nærri tvöfaldast á tuttugu árum „Ég held að það þurfi að koma böndum á þetta“ Þakklát fyrir þrjósku hundsins Gætu þurft að loka Fjölskyldulandi „Þetta gæti bara byrjað hvenær sem er“ Einbeitti sér alfarið að Svedda Tönn Finnst líklegt að vindorka verði þriðja stoðin í orkukerfi landsins Íbúi á sjötugsaldri lést í brunanum við Amtmannsstíg Milla hætt hjá Willum Fimm milljarðar í húsnæðisúrræði fyrir hælisleitendur Lögreglan leitar að stolnum Volvo Svipaður hlátur á öllum upptökunum Viðskiptaráð biður ráðuneytið um niðurstöður námsmats Telja áform um uppbyggingu vindmyllugarða verulegt áhyggjuefni Skiptu um síma og símkort eins og nærbuxur til að hylja slóð sína Starfsmenn Veðurstofunnar í biðstöðu og kvikusöfnun heldur áfram Sex sóttu um embætti forstjóra Náttúrufræðistofnunar Bruni í miðbænum og Landvernd slæst við vindmyllur Mikill og dökkur reykur í íbúðinni Einn fluttur á slysadeild eftir bruna á Amtmannsstíg „Það er öllum brögðum beitt til að koma vörunum sem víðast“ Þurfi að sýna skynsemi við uppbyggingu vindorkuvera Fluttur á sjúkrahús eftir að bát hvolfdi Ekki óyggjandi sönnun fyrir meintu dýraníði blóðbónda að mati MAST Hringveginum lokað við Borgarnes vegna elds í vörubíl Malarvagn kramdi bílstjórahús flutningabíls Ferðamenn í báðum bifreiðum Landsvirkjun skrefi nær því að reisa fyrsta vindorkuverið Rannsaka hugsanleg veikindi af völdum E.coli Makaði tómatsósu á útidyrahurð nágranna sinna Sjá meira