Erlent

Mubarak segir hugsanlega af sér í kvöld

Mótmæli.
Mótmæli.

Erlendir fjölmiðlar segja mögulegt að Hosni Mubarak, forseti Egyptlands, muni segja af sér í dag. Þetta kom fram í máli Hossan Badrawi, framkvæmdastjóri NPD flokksins í ríkissjónvarpi Egyptalands.

Sumar fréttastofu hafa greint frá því að það sé mögulegt að Mubarak muni segja af sér í kvöld.

Mótmælin hafa staðið linnulaust í sautján daga milljónir mótmælt á götum úti. Fjöldi manns hafa slasast og látist í átökum tengdum mótmælunum.

Mubarak hefur reynt að lægja öldurnar, meðal annars með því að reka ríkisstjórnina. Það hefur þó ekki haft tilætlaðan árangur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×