Erlent

Sprengja sprakk fyrir utan kirkju

Mynd/AP
Meira en 20 eru látnir og hátt í 80 eru særðir eftir sprengjuárás fyrir utan kirkju í borginni Alexandríu í Egyptalandi í nótt. Sprengjan sprakk þegar að kirkjugestir gengu út úr kirkjunni að lokinni miðnæturmessu.

Eftir árásina lenti kristnum mönnum og múslimum saman fyrir utan moskur í borginni og þurfti lögregla að beita tárgasi til að dreifa fjöldanum. 10% Egypta eru kristnir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×