Síldin í Breiðafirði mjög sýkt 3. febrúar 2011 04:00 Höfnin fylltist af sýktri og deyjandi síld sem var hirt upp af sjófugli.
Frumniðurstöður úr rannsóknarleiðangri Hafrannsóknastofnunar í janúar staðfesta fyrri mælingar um mikla sýkingu í íslensku sumargotssíldinni í Breiðafirði. Rannsóknaskipið Dröfn RE var við síldarrannsóknir í fimm daga við að kanna útbreiðslu stofnsins, magnmæla hann og síðast en ekki síst að meta og fylgjast með þróun sýkingarinnar sem herjað hefur á síldina frá árinu 2008 og valdið miklum afföllum bæði í ungsíld sem og veiðistofninum. Alls voru tekin sjö sýni í leiðangrinum, tvö úr torfu í Grundarfirði, fjögur úr torfu í Kolgrafarfirði og eitt úr dreifðri síld í Grundarfirði. Hlutfall sýktra sílda var nánast það sama í torfunum tveimur í Kolgrafafirði og Grundarfirði, eða 43-45 prósent. Hins vegar var mun meiri sýking í sýni sem tekið var úr dreifðri síld í Grundarfirði, en þar voru 53 prósent sýkt. Í sýnum sem tekin voru úr afla veiðiskipa á vertíðinni haustið 2010 sést að hlutfall sýktra sílda nú er óbreytt. Þessar rannsóknir nú staðfesta því fyrri mælingar um mikla sýkingu í stofninum. Fyrirhugað er að Dröfnin fari að nýju til sambærilegra rannsókna í lok þessa mánaðar. - shá
Mest lesið Þakklát fyrir þrjósku hundsins Innlent Gætu þurft að loka Fjölskyldulandi Innlent Einbeitti sér alfarið að Svedda Tönn Innlent „Hélt ég væri að fara að drepast. Þú heyrir i sprengjunni koma“ Erlent „Ég held að það þurfi að koma böndum á þetta“ Innlent Handtökuskipun gefin út vegna Nord Stream skemmdarverkanna Erlent Milla hætt hjá Willum Innlent Hamas segjast ekki munu senda fulltrúa til viðræðna á morgun Erlent „Þetta gæti bara byrjað hvenær sem er“ Innlent Íbúi á sjötugsaldri lést í brunanum við Amtmannsstíg Innlent Fleiri fréttir Greiddu 47 milljónir fyrir 175 hjálma fyrir leiðtogafundinn Heildarakstur í þjóðvegakerfi nærri tvöfaldast á tuttugu árum „Ég held að það þurfi að koma böndum á þetta“ Þakklát fyrir þrjósku hundsins Gætu þurft að loka Fjölskyldulandi „Þetta gæti bara byrjað hvenær sem er“ Einbeitti sér alfarið að Svedda Tönn Finnst líklegt að vindorka verði þriðja stoðin í orkukerfi landsins Íbúi á sjötugsaldri lést í brunanum við Amtmannsstíg Milla hætt hjá Willum Fimm milljarðar í húsnæðisúrræði fyrir hælisleitendur Lögreglan leitar að stolnum Volvo Svipaður hlátur á öllum upptökunum Viðskiptaráð biður ráðuneytið um niðurstöður námsmats Telja áform um uppbyggingu vindmyllugarða verulegt áhyggjuefni Skiptu um síma og símkort eins og nærbuxur til að hylja slóð sína Starfsmenn Veðurstofunnar í biðstöðu og kvikusöfnun heldur áfram Sex sóttu um embætti forstjóra Náttúrufræðistofnunar Bruni í miðbænum og Landvernd slæst við vindmyllur Mikill og dökkur reykur í íbúðinni Einn fluttur á slysadeild eftir bruna á Amtmannsstíg „Það er öllum brögðum beitt til að koma vörunum sem víðast“ Þurfi að sýna skynsemi við uppbyggingu vindorkuvera Fluttur á sjúkrahús eftir að bát hvolfdi Ekki óyggjandi sönnun fyrir meintu dýraníði blóðbónda að mati MAST Hringveginum lokað við Borgarnes vegna elds í vörubíl Malarvagn kramdi bílstjórahús flutningabíls Ferðamenn í báðum bifreiðum Landsvirkjun skrefi nær því að reisa fyrsta vindorkuverið Rannsaka hugsanleg veikindi af völdum E.coli Sjá meira