Erlent

Arnold fer aftur á hvíta tjaldið

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Arnold Schwarzenegger ætlar að byrja að leika aftur. Mynd/ afp.
Arnold Schwarzenegger ætlar að byrja að leika aftur. Mynd/ afp.
Arnold Schwarzenegger, fyrrverandi ríkisstjóri í Kalíforníu, mun líklegast snúa sér að kvikmyndaleik á nýjan leik. Hann lét af embætti ríkisstjóra í byrjun ársins.

Líklegt þykir að Schwarzenegger muni taka að sér hlutverk í myndinni With Wings as Eagles. Hún fjallar um afdrif þýsks hermanns í Seinni heimstyrjöldinni. Sjálfur segir Schwarzenegger, sem verður sextíuogfjögurra ára gamalla á þessu ári, að líkamlegt atgervi hans sé ekki nægilega gott til að hann geti fengist við sambærileg hlutverk og áður fyrr. Hann verði því að fara að huga betur að aldri þegar að hann velur sér hlutverk.

Schwarzenegger bendir á að þetta hafi Clint Eastwood einnig gert með góðum árangri.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×