Hafðu púff þetta púff púff ódámurinn þinn Óli Tynes skrifar 7. janúar 2011 14:51 Let it snow.... Mynd/Wikipedia
Mál tveggja eftirlaunaþega í Svíþjóð er til rannsóknar hjá lögreglunni eftir að þeir börðust með snjóskóflum svo blóðið flaut. Ingvar Flood er 71. árs og Francesco Fusco er 81. árs. Þeir búa báðir í Smálöndum í Svíþjóð í grennd við Jönköping. Ekki nóg með að þeir búi þar báðir, þeir eru nágrannar. Hús þeirra standa hlið við hlið. Það hefur snjóað býsnin öll í Smálöndum eins og annarsstaðar í Svíþjóð þennan veturinn. Það hefur valdið nágrannaerjum. Þegar Francesco er að moka stéttina sína út á götu hefur hann fyrir sið að fleygja snjónum upp að grindverki Ingvars. Það fer ógurlega í taugarnar á Ingvari. Þegar Ingvar er að moka sína stétt hefur hann fyrir sið að fleygja snjónum upp að póstkassa Francescos. Það fer ógurlega í taugarnar á Francesco. Í gær sauð svo uppúr. Francesco barði Ingvar í hausinn með snjóskóflunni sinni og Ingvar skellti Francesco um koll með sinni snjóskóflu. Eiginkona Francescos kom eitthvað að málinu og fauk út í skafl. Francesco hefur nú kært Ingvar til lögreglunnar. Og Ingvar hefur kært Francesco til lögreglunnar. Lögreglan rannsakar málið.
Mest lesið „Mér að mæta“ ef krossar yrðu fjarlægðir Innlent Hlé vegna gagna frá ChatGPT Innlent Óttast að tapa bestu flúðum landsins í virkjun Innlent Sérsveitin kölluð til í Urriðaholti Innlent Katrín gerir upp framboðið og safnar heitum Innlent Segir verkfræðinga á villigötum Innlent Þriggja daga heitavatnsleysi í næstu viku Innlent Trump gerði lítið úr æðstu heiðursorðu bandarískra hermanna Erlent „Viðbrögð lögreglu óásættanleg“ eftir líkamsárás á Þjóðhátíð Innlent Rauðu örvarnar leika listir sínar á Íslandi Innlent Fleiri fréttir Trump gerði lítið úr æðstu heiðursorðu bandarískra hermanna Rússar saka Nató og Vesturlönd um aðild að áhlaupi Úkraínumanna Landtökumenn á Vesturbakkanum kveiktu í húsum og bifreiðum Dóttir Thaksin verður yngsti forsætisráðherra Taílands Apabóla greinist í Svíþjóð Úkraínumenn hafa náð valdi yfir Súdsja Gæsluvarðhald yfir Paul Watson framlengt Tólf ára fangelsi fyrir að styrkja Úkraínu um þúsundkalla Sagðir hafa lagt á ráðin um skemmdarverkin á Nord Stream í ölæði Óttast aukna útbreiðslu sýklalyfjaónæmra lekandabaktería Gena Rowlands er látin Neyðarástandi lýst yfir vegna apabólu í hluta Afríku Rannsaka innbrot og mögulega vatnsmengun á herstöð í Þýskalandi Nýfæddir tvíburar létust í sprengjuárás á meðan faðirinn brá sér frá Úkraínumenn halda sókn sinni handan landamæranna áfram Fjögurra daga gamlir tvíburar drepnir í árás Ísraela Segja sjónvarpsáskrift koma í veg fyrir lögsókn vegna dauðsfalls SÞ fordæma ógegnsæi í kosningunum í Venesúela Erlendir þrjótar reyna að brjótast inn til Harris og Trump „Hélt ég væri að fara að drepast. Þú heyrir i sprengjunni koma“ Forsætisráðherra Japan sækist ekki eftir endurkjöri Handtökuskipun gefin út vegna Nord Stream skemmdarverkanna Hamas segjast ekki munu senda fulltrúa til viðræðna á morgun Hafa ekki í hyggju að halda Kúrsk Tugir þúsunda létust af völdum hita í Evrópu Mannréttindastjóri gagnrýnir óhóflega beitingu valds í Venesúela Gera sér ekki mat úr lekanum úr framboði Trump Netanyahu og Gallant í hár saman undir hótunum frá Íran Maður ákærður fyrir stunguárás á ellefu ára stúlku í Lundúnum í gær Fyrsta dauðfallið staðfest í eldunum á Grikklandi Sjá meira