Erlent

Fjórir fórust í flóði í Ástralíu

Frá bænum Toowoomba í Ástralíu í dag.
Frá bænum Toowoomba í Ástralíu í dag. Mynd/AP

Að minnsta kosti fjórir létu lífið þegar skyndilegt flóð skall á bænum Toowoomba í Ástralíu í dag. Vatnsflaumurinn var svo sterkur að hann sópaði með sér bílum um götur bæjarins. Björgunarmenn unnu mörg afrek við að bjarga fólki af húsþökum. Sumum þurfti að bjarga af þökum bíla sinna.

Mestu flóð í 50 ár hafa hrjáð Ástrala undanfarna daga. Flóðasvæðið hefur verið stærra en Frakkland og Þýskaland samanlagt.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×