Fimmföldun á gjaldi fyrir læknisvottorð 3. febrúar 2011 16:00 Gjald fyrir vissar tegundir læknisvottorða hefur hækkað verulega. Fréttablaðið/Stefán
Gjald fyrir vottorð vegna umsókna um örorkubætur til lífeyrissjóða hækkaði umtalsvert með nýrri gjaldskrá sem tók gildi um síðustu áramót. Bótaþegi, sem vill ekki láta nafns síns getið, segir í samtali við Fréttablaðið að hann hafi rekið upp stór augu þegar hann endurnýjaði vottorð sitt í vikunni. „Ég fór til heimilislæknis fyrir um tveimur vikum og pantaði hjá honum þetta vottorð. Ég sótti það svo á þriðjudag og þurfti þar að borga rúmar 10.000 krónur fyrir vottorðið. Hingað til, síðast fyrir um hálfu ári, hef ég bara þurft að borga 1.000 til 2.000 krónur fyrir þess konar vottorð," segir bótaþeginn. Hann segir enga læknisskoðun hafa falist í umsókninni, enda sé um endurnýjun vottorðs að ræða. Þá sé gjaldið fyrir læknisheimsóknina ekki innifalið í þessari upphæð. Í reglugerð velferðarráðneytisins, sem tók gildi í upphafi árs, segir í ákvæði um vottorð af þessu tagi að miða skuli við „hversu langan tíma það tekur lækni að gera vottorðið". Gjaldið miðar við 3.450 krónur „fyrir hverjar byrjaðar 20 mínútur" sem læknir eyðir í að útbúa vottorðið. Má þess vegna gefa sér að það hafi tekið lækni að minnsta kosti 40 mínútur til að útbúa vottorðið fyrir viðmælanda Fréttablaðsins. Spurður um ástæðu hækkunarinnar vísaði talmaður Sjúkratrygginga Íslands á velferðarráðuneytið. Ekki bárust svör frá ráðuneytinu við fyrirspurn Fréttablaðsins. - þj
Mest lesið Þakklát fyrir þrjósku hundsins Innlent Gætu þurft að loka Fjölskyldulandi Innlent Einbeitti sér alfarið að Svedda Tönn Innlent „Hélt ég væri að fara að drepast. Þú heyrir i sprengjunni koma“ Erlent „Ég held að það þurfi að koma böndum á þetta“ Innlent Handtökuskipun gefin út vegna Nord Stream skemmdarverkanna Erlent Milla hætt hjá Willum Innlent Hamas segjast ekki munu senda fulltrúa til viðræðna á morgun Erlent „Þetta gæti bara byrjað hvenær sem er“ Innlent Íbúi á sjötugsaldri lést í brunanum við Amtmannsstíg Innlent Fleiri fréttir Heildarakstur í þjóðvegakerfi nærri tvöfaldast á tuttugu árum „Ég held að það þurfi að koma böndum á þetta“ Þakklát fyrir þrjósku hundsins Gætu þurft að loka Fjölskyldulandi „Þetta gæti bara byrjað hvenær sem er“ Einbeitti sér alfarið að Svedda Tönn Finnst líklegt að vindorka verði þriðja stoðin í orkukerfi landsins Íbúi á sjötugsaldri lést í brunanum við Amtmannsstíg Milla hætt hjá Willum Fimm milljarðar í húsnæðisúrræði fyrir hælisleitendur Lögreglan leitar að stolnum Volvo Svipaður hlátur á öllum upptökunum Viðskiptaráð biður ráðuneytið um niðurstöður námsmats Telja áform um uppbyggingu vindmyllugarða verulegt áhyggjuefni Skiptu um síma og símkort eins og nærbuxur til að hylja slóð sína Starfsmenn Veðurstofunnar í biðstöðu og kvikusöfnun heldur áfram Sex sóttu um embætti forstjóra Náttúrufræðistofnunar Bruni í miðbænum og Landvernd slæst við vindmyllur Mikill og dökkur reykur í íbúðinni Einn fluttur á slysadeild eftir bruna á Amtmannsstíg „Það er öllum brögðum beitt til að koma vörunum sem víðast“ Þurfi að sýna skynsemi við uppbyggingu vindorkuvera Fluttur á sjúkrahús eftir að bát hvolfdi Ekki óyggjandi sönnun fyrir meintu dýraníði blóðbónda að mati MAST Hringveginum lokað við Borgarnes vegna elds í vörubíl Malarvagn kramdi bílstjórahús flutningabíls Ferðamenn í báðum bifreiðum Landsvirkjun skrefi nær því að reisa fyrsta vindorkuverið Rannsaka hugsanleg veikindi af völdum E.coli Makaði tómatsósu á útidyrahurð nágranna sinna Sjá meira