Erlent

Mubarak á að fara frá völdum strax

Barack Obama
Barack Obama Mynd/AFP
Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, sendi starfsbróður sínum í Egyptalandi, Hosni Mubarak, skýr skilaboð á blaðamannafundi í gær.

Hann sagði að Mubarak ætti að haga sér eins og stjórnvitringi sæmir og afsala sér völdum til ríkisstjórnar með umboð fólksins. Stanslaus mótmæli gegn forsetanum hafa geisað í Egyptalandi undanfarna ellefu daga, en Obama hefur ekki verið jafn berorður í garð Mubaraks hingað til.

Hann sagði að nýtt tímabil í sögu landsins þyrfti að hefjast þegar í stað, og gaf þar með í skyn að Mubarak ætti ekki að bíða fram að kosningum landsins í september með að fara frá völdum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×