Innlent

Umferðarslys á höfuðborgarsvæðinu

Fjögurra bíla árekstur varð á Miklubrautinni. Mynd/ Sigurjón.
Fjögurra bíla árekstur varð á Miklubrautinni. Mynd/ Sigurjón.
Fjögurra bíla árekstur varð á gatnamótum Miklubrautar og Lönguhlíðar nú síðdegis í dag. Einn var fluttur á slysadeild til aðhlynningar. Áverkarnir reyndust ekki alvarlegir.

Einnig varð þriggja bíla árekstur á Dalvegi. Ekki var um alvarlega áverka að ræða en þrír voru fluttir á slysadeild til frekari skoðunar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×