Innlent

Ákærðir fyrir kannabisrækt 

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur ákært þrjá karlmenn á milli tvítugs og þrítugs fyrir fíkniefnalagabrot.

Mönnunum er gefið að sök að hafa í desember á síðasta ári haft í vörslum sínum tíu kannabisplöntur, 113 grömm af kannabislaufum, rúm 700 grömm af kannabisstönglum og rúm 350 grömm af maríjúana. Mennirnir eru ákærðir fyrir að hafa ræktað plönturnar og ætlað fíkniefnin til dreifingar og sölu.- jss




Fleiri fréttir

Sjá meira


×