Erlent

Eitt versta vetrarveður í manna minnum skellur á vestan hafs

Nokkrar stórborgir í Miðvesturríkjum Bandaríkjanna búa sig nú undir eitthvert versta vetrarveður í manna minnum á þessum slóðum.

Blindhríð og stormur mun skella á borgunum Chicago, Oklahoma og St. Louis. Í frétt um málið á CNN segir að lögregluyfirvöld og björgunarsveitir í þessum borgum og víðar í þessum ríkjum séu undirbúnar undir veðrið sem skellur á síðar í dag.

Haft er eftir veðurfræðingi í Chicago að sennilega verði þar um að ræða einn af tíu verstu vetrarstormum í sögu borgarinnar. Reiknað er með að snjókoman í borginni muni samsvara 50 sentimetrum af jafnföllnum snjó.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×