Í lífshættu vegna svínaflensu 21. janúar 2011 09:45 Sóttvarnalæknir hvetur fólk til að láta bólusetja sig sem fyrst.
Þrítug kona liggur nú á gjörgæsludeild Landspítala með alvarleg sjúkdómseinkenni af völdum svínainflúensu. Konan var lögð inn í fyrradag. Hún hafði ekki verið bólusett gegn inflúensunni en er með undirliggjandi áhættuþætti sem auka líkur á alvarlegum veikindum af völdum inflúensunnar. „Það er staðfest að eitthvað á annan tug manna hefur fengið hana hér,“ segir Haraldur Briem sóttvarnalæknis. „Einnig fylgjumst við með inflúensulíkum einkennum og hafa nú verið skráð á annað hundrað tilvik. Mjög líklegt er að um svínainflúensu sé að ræða í þessum tilvikum, þar sem hún hefur verið staðfest hér. Við erum hins vegar að vona að bólusetningin dragi verulega úr faraldrinum.“ Mikið álag er nú á gjörgæsludeildum í mörgum nágrannalöndunum vegna svínainflúensunnar sem sækir í sig veðrið, að því er Haraldur segir. Enn sem komið er virðist inflúensan ekki hafa náð mikilli útbreiðslu í samfélaginu hér. Er fólk sem ekki hefur fengið inflúensubólusetningu hvatt til að láta bólusetja sig sem fyrst, að sögn sóttvarnalæknis.- jss
Mest lesið Halla Hrund sótti ekki um nýja forstjórastöðu Innlent Fastur á leigumarkaði með verðlaust hús í Grindavík Innlent Allt með kyrrum kjörum þrátt fyrir reyk og ljóstýru Innlent Gena Rowlands er látin Erlent Fundu ferðamennina um hálf eitt í nótt Innlent Verkfræðingar segja vald SA „óeðlilega mikið“ Innlent Fjögurra daga gamlir tvíburarnir fórust á meðan faðirinn brá sér frá Erlent Rannsaka innbrot og mögulega vatnsmengun á herstöð í Þýskalandi Erlent Leggur til að hjólhýsabyggðin verði við Rauðavatn eða í Gufunesi Innlent Leita að göngumanni í Kerlingarfjöllum Innlent Fleiri fréttir Leggur til að hjólhýsabyggðin verði við Rauðavatn eða í Gufunesi Verkfræðingar segja vald SA „óeðlilega mikið“ Fastur á leigumarkaði með verðlaust hús í Grindavík Halla Hrund sótti ekki um nýja forstjórastöðu Fundu ferðamennina um hálf eitt í nótt Ekið heim eftir „smá uppsteyt“ í miðborginni Allt með kyrrum kjörum þrátt fyrir reyk og ljóstýru Gaukarnir gista og fá snyrtingu Leita að göngumanni í Kerlingarfjöllum Óttast um velferð íbúa og höfðar til skynsemi þeirra Tryggja þurfi að vindorkan haldist í höndum þjóðarinnar Bótagreiðslur til Íslendinga almennt hærri Á annað hundrað kvenna bíða eftir minni brjóstum Setti hraðamet í heiðurssundi fyrir syni Eddu Bjarkar Ósammála um hvort árekstur hefði orðið Gripin með óhrein peningabúnt í Leifsstöð Stíga annað stórt skref að virkjun við Búrfell Óvenjulegur grafreitur reistur á Seltjarnarnesi Eyddu sprengju úr seinni heimsstyrjöldinni í Hlíðarfjalli Halldór Bragason lést í eldsvoðanum Enginn vindmyllugarður án bættra vega Orsök veikindanna enn á huldu Gísla Pálma refsað fyrir akstur undir áhrifum Kynhlutlaus klósett orðin að lögum Á hlaupum yfir hraunið með hræ í kjaftinum Vindorka í Dölunum og iðrakveisa á Rjúpnavöllum Stal gaskúti og stakk honum í Wolt-tösku Skoða að kæra útgáfu virkjanaleyfis fyrir Búrfellslund Heilsugæslan skipuleggur sýnatökur vegna e. coli mengunar Greiddu 47 milljónir fyrir 175 hjálma fyrir leiðtogafundinn Sjá meira