Erlent

Sonur Mubaraks flýr land

Hosni Mubarak, forseti Egyptalands.
Hosni Mubarak, forseti Egyptalands.

Sonur Hosni Mubaraks, forseta Egyptalands, flúði land í gær samkvæmt arabískum fjölmiðlum eftir að óeirðir brutust út í Kairó með þeim afleiðingum að þrír létust og þúsundir slösuðust.

Sonur Mubaraks er álitinn arftaki hans í embætti. Sonurinn flýði ásamt fjölskyldu sinni til Bretlands eftir mótmælin í gærdag sem koma í kjölfar byltingarinnar í Túnis.

Talið er að þrjátíu þúsund hafi tekið þátt í mótmælunum. Einn lögreglumaður lést í átökunum samkvæmt arabískum fjölmiðlum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×