Ástum steinbítanna lauk með harmleik 12. janúar 2011 04:00 Hængurinn hringaði sig ekki um hrognaklasann eins og við var búist heldur sökkti skoltunum í tilvonandi afkvæmi sín. Hann át um þriðjung þeirra. Fréttablaðið/Óskar P. Friðriksson „
Steinbítshrygnan hrygndi um hálfáttaleytið [í fyrrakvöld]. Hængurinn hefði átt að taka við hrognaklasanum af henni en í staðinn át hann hrognin. Það voru mikil vonbrigði," segir Margrét Lilja Magnúsdóttir, safnstjóri Sæheima í Vestmannaeyjum. Á miðvikudag fylgdust starfsmenn safnsins og aðrir dolfallnir með eðlun steinbítspars og vonuðust til að hægt yrði að ala afsprengi mökunarinnar - nokkur hundruð seiði - í búrum. Það varð hins vegar uppi fótur og fit þegar hængurinn réðst að hrognaklasanum, sem var á stærð við meðalgreipaldin, og tók til matar síns. „Við rukum til og fjarlægðum hann úr búrinu en hrygnunni fipaðist við þetta. Hrognin lágu bara eins og hráviði eftir hann þannig að hún skipti sér ekkert meira af þeim," segir Margrét. „Þetta var dramatískt. Hann hefði étið þau öll ef hann hefði fengið tækifæri til þess." En ekki er öll nótt úti enn. Hængnum tókst ekki að gleypa nema um þriðjung hrognanna og vonir eru bundnar við að restin klekist eftir nokkrar vikur. Þá stendur til að reyna að ala seiðin á smáum krabbadýrum. Slíkt hefur verið reynt með loðnuseiði og humarlirfur.stigur@frettabladid.is
Mest lesið Katrín gerir upp framboðið og safnar heitum Innlent Rauðu örvarnar leika listir sínar á Íslandi Innlent „Viðbrögð lögreglu óásættanleg“ eftir líkamsárás á Þjóðhátíð Innlent Óttast að tapa bestu flúðum landsins í virkjun Innlent Gæti misst fótinn eftir að starfsmannarútan ók yfir hana Innlent Dóttir Thaksin verður yngsti forsætisráðherra Taílands Erlent Landtökumenn á Vesturbakkanum kveiktu í húsum og bifreiðum Erlent Landsvirkjun gerir 725 milljón króna tilboð í Toppstöðina Innlent Áttar sig ekki á ákalli formanns VG Innlent Flytur út frá foreldrum sínum þökk sé hundaheppni Innlent Fleiri fréttir Landtökumenn á Vesturbakkanum kveiktu í húsum og bifreiðum Dóttir Thaksin verður yngsti forsætisráðherra Taílands Apabóla greinist í Svíþjóð Úkraínumenn hafa náð valdi yfir Súdsja Gæsluvarðhald yfir Paul Watson framlengt Tólf ára fangelsi fyrir að styrkja Úkraínu um þúsundkalla Sagðir hafa lagt á ráðin um skemmdarverkin á Nord Stream í ölæði Óttast aukna útbreiðslu sýklalyfjaónæmra lekandabaktería Gena Rowlands er látin Neyðarástandi lýst yfir vegna apabólu í hluta Afríku Rannsaka innbrot og mögulega vatnsmengun á herstöð í Þýskalandi Nýfæddir tvíburar létust í sprengjuárás á meðan faðirinn brá sér frá Úkraínumenn halda sókn sinni handan landamæranna áfram Fjögurra daga gamlir tvíburar drepnir í árás Ísraela Segja sjónvarpsáskrift koma í veg fyrir lögsókn vegna dauðsfalls SÞ fordæma ógegnsæi í kosningunum í Venesúela Erlendir þrjótar reyna að brjótast inn til Harris og Trump „Hélt ég væri að fara að drepast. Þú heyrir i sprengjunni koma“ Forsætisráðherra Japan sækist ekki eftir endurkjöri Handtökuskipun gefin út vegna Nord Stream skemmdarverkanna Hamas segjast ekki munu senda fulltrúa til viðræðna á morgun Hafa ekki í hyggju að halda Kúrsk Tugir þúsunda létust af völdum hita í Evrópu Mannréttindastjóri gagnrýnir óhóflega beitingu valds í Venesúela Gera sér ekki mat úr lekanum úr framboði Trump Netanyahu og Gallant í hár saman undir hótunum frá Íran Maður ákærður fyrir stunguárás á ellefu ára stúlku í Lundúnum í gær Fyrsta dauðfallið staðfest í eldunum á Grikklandi Fóru um víðan völl í samtali á X í gær Segjast hafa lagt undir sig um það bil þúsund ferkílómetra Sjá meira