Erlent

Önnur kona ætlar að kæra Strauss-Kahn

Dominique Strauss-Kahn.
Dominique Strauss-Kahn.
Franski rithöfundurinn, Tristane Banon, hyggst kæra Dominique Strauss-Kahn fyrir að hafa reynt að nauðga sér þegar hún var 22 ára gömul.

Banon hefur áður komið fram í fjölmiðlum og rætt um atvikið. Hún segist hafa hitt Strauss-Kahn í íbúð í París en þá ætlaði hún að taka viðtal við hann.

Strauss-Kahn var handtekinn í maí fyrir meint kynferðisbrot gegn herbergisþernu á hóteli þar sem hann dvaldi. Það mál hefur snúið heldur betur upp á sig eftir að í ljós kom að konan á að hafa starfað sem vændiskona. Strauss-Kahn hefur því verið látinn laus.

Lögmaður Tristane hefur áður sagt í fjölmiðlum að hún ætlaði ekki að kæra Strauss-Kahn fyrr en kynferðisbrotamáli þernunnar væri lokið. Nú hefðu þau hinsvegar tekið þá ákvörðun að kæra hann fyrr en til stóð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×