Innlent

Umferðarslys í Víðidal við Gröf

Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út vegna umferðarslyss sem varð í Víðidal við Gröf í Vestur-Húnavatnssýslu  um hádegið.

Vegurinn um Víðidal er lokaður í báðar áttir en hjáleið opin fyrir fólksbíla.  Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Blönduósi þurfti að notast við klippur til þess að ná manni út úr einni bifreiðinni. Þeirri vinnu er lokið.

Þyrlan mun flytja hina slösuðu á Landspítalann í Reykjavík.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×