Innlent

Göngustígshrotti laus úr haldi

Rúmlega tvítugur maður hefur verið látinn laus úr gæsluvarðhaldi, meðan hann bíður dóms í Hæstarétti fyrir líkamsárás. Maðurinn var í héraðsdómi dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir árás á 16 ára gamla stúlku í Laugardal þann 11. október í fyrra. Hann réðst að henni á göngustíg og stórslasaði hana.

Héraðsdómur hafði dæmt manninn í gæsluvarðhald þar til dómur gengi í Hæstarétti, en Hæstiréttur felldi þann úrskurð úr gildi vegna þess að málshraði þótti ekki fullnægjandi.- jss




Fleiri fréttir

Sjá meira


×