Innlent

Bannað eiturefni í flugeldum

HCB er notað til að skýra liti í flugeldum. Notkun efnisins hefur verið á undanhaldi, segir innflytjandi.
HCB er notað til að skýra liti í flugeldum. Notkun efnisins hefur verið á undanhaldi, segir innflytjandi. Mynd/Pjetur
Efnagreiningar Umhverfisstofnunar sýna að flugeldar sem seldir eru hér á landi innihalda þrávirka eiturefnið hexaklórbensen (HCB). Efnið hefur verið bannað um langt skeið vegna alvarlegra áhrifa þess á umhverfið og heilsu manna.

Við mælingar á efnainnihaldi flugelda á vegum yfirvalda í Danmörku á síðastliðnu ári kom í ljós að hluti þeirra innihélt HCB. Í framhaldi af þessum fregnum ákvað Umhverfisstofnun að mæla efnið í andrúmslofti í Reykjavík yfir síðustu áramót. HCB mældist umtalsvert yfir því bakgrunnsgildi sem miðað er við, en þó er talið að magnið hafi ekki haft teljandi áhrif á heilsu fólks.

Umhverfisstofnun hefur ákveðið, í samvinnu við nokkrar heilbrigðisnefndir sveitarfélaga, að standa fyrir sýnatökum og mælingum á innihaldi flugelda sem fluttir verða til landsins á næstu mánuðum fram að áramótum.

Það er á ábyrgð innflytjenda að tryggja að flugeldar innihaldi ekki efni sem eru bönnuð, og mikilvægt að mati Umhverfisstofnunar að þeir flytji aðeins inn löglega flugelda og fái staðfestingu frá framleiðanda um að flugeldarnir innihaldi ekki HCB, sé þess nokkur kostur.

Kristinn Ólafsson, framkvæmdastjóri Landsbjargar, en björgunarsveitirnar eru langstærsti innflytjandi flugelda hér á landi, segir alla flugelda sem Landsbjörg flytur inn sérmerkta eftir stöðlum sem notaðir eru í Evrópu. Flugeldarnir komi að langmestum hluta frá þekktum framleiðanda í Kína sem sé kunnugt um reglur um óæskileg efni eins og HCB.

Kristinn segir að flugeldabirgðir fyrir næstu áramót hafi verið keyptar í janúar. Hann segir að björgunarsveitirnar séu í „mjög vondum málum“ ef endurskoða þurfi þau kaup. „Ég vona að yfirvöld sýni þessu skilning. Við töldum að þetta væri ekki í þeirri vöru sem við flytjum inn, en við tökum þetta mjög alvarlega.“

Umhverfisstofnun mun kanna hvort slík efni sé að finna í flugeldum hérlendis og einnig koma upplýsingum til birgja um hvernig megi ganga úr skugga um að hættuleg efni sé ekki að finna í flugeldum. Stofnunin hefur gefið út að komi í ljós að flugeldar innihaldi HCB munu eftirlitsaðilar sjá til þess að þeir flugeldar fari ekki í sölu.

svavar@frettabladid.is




Fleiri fréttir

Sjá meira


×