Innlent

Sjálfboðaliðar fegra borgina

Sjálfboðaliðarnir voru önnum kafnir við að mála ljósastaura á Laugaveginum í gær.
Sjálfboðaliðarnir voru önnum kafnir við að mála ljósastaura á Laugaveginum í gær. Mynd/Stefán
Fulltrúar frá sjálfboðaliðasamtökunum SEEDS, eða SEE beyonD borderS, vinna þessa dagana að því að fegra ásýnd miðborgarinnar. Borgin hvetur húseigendur til að taka þátt í átakinu.

Meðal þess sem sjálfboðaliðarnir munu gera, undir stjórn framkvæmda- og eignasviðs borgarinnar, er að mála ljósastaura, vegstólpa og stöðumæla við Laugaveg og Austurstræti. Borgin hvetur húseigendur til að mála framhliðar eða gafla í sjónlínu frá götu, sé þess þörf.

- sh




Fleiri fréttir

Sjá meira


×