Sílastofninn virðist ekki ná sér á strik 6. júlí 2011 06:00 Þótt krían hafi oft verið til ama eru menn farnir að sakna þess að sjá ekki meira af henni í Flatey. Mynd/GVA
Fuglalíf í Flatey Magnús Jónsson segist reka upp stór augu þegar hann sér lunda. Fyrstu vísbendingar úr rannsóknarleiðangri á Breiðafirði benda ekki til þess að sílastofninn sé að ná sér á strik. Þetta segir Valur Bogason líffræðingur og einn leiðangursmanna. Hríðminnkandi sílastofn kemur illa niður á varpi sjófugla við sunnan- og vestanvert landið, til dæmis er fuglalíf í Flatey með daufasta móti að sögn íbúa þar. Öðru máli gegnir um ástandið við norðanvert landið, segir Erpur Snær Hansen líffræðingur enda er nóg um loðnu á þeim svæðum. Magnús Jónsson, íbúi í Flatey, segir hríðversnandi afkomu sjófugla ekki fara framhjá heimamönnum. „Það er alveg ótrúlegt að horfa upp á þetta, þetta er nánast alveg dautt hérna,“ segir hann. „Maður er farinn að reka upp stór augu þegar maður sér lunda hérna,“ bætir hann við. Þessi sílaskortur hefur ekki eingöngu áhrif á fjölda fuglanna í Flatey heldur einnig hegðun þeirra. „Það er svo lítið æti fyrir mávinn að hafa í sjónum að hann er farinn að haga sér eins og við Tjörnina fyrir sunnan. Hann er farinn að sækja í matarbita uppi á landi, hann er til dæmis farinn að leita í hænsnafóðrið há mér,“ segir Magnús. Hann segir enn fremur að kríuvarpið virðist hafa farið forgörðum að mestu þó eitthvað sé krían að taka við sér eftir að það hitnaði í veðri í síðustu viku. Þó sé það spurning hvort ungarnir verði orðnir nógu stálpaðir þegar kemur að því að hefja sig til flugs yfir hafið. Erpur Snær segir að lægð í lundavarpi haldist oft í hendur við hlýnandi sjó. Til dæmis hafi verulega dregið úr lundafjöldanum í kringum 1930 en þá var sjávarhiti í hámarki. Valur segir að skýringin á fækkun síla kunni að vera sambland af umhverfisáhrifum, eins og hækkandi sjávarhita, og arðráni. jse@frettabladid.is
Mest lesið Guðni um bílakaupin umdeildu: „Myndir þú kaupa bíl af svona fólki?“ Innlent Skólastjóri Rimaskóla í áfalli Innlent Vandræðasaga Helga: Skortur á hommum, meint „kerlingartussa“ og Facebook-þumallinn Innlent Halla Tómasdóttir orðin sjöundi forseti lýðveldisins Innlent Ofbeldi verði að lokum eina svarið gegn „cancel culture og vók hyski“ Innlent Sagði Harris nýlega „orðna svarta“ Erlent Ekki hrifin af breytingum og óskar Höllu velfarnaðar Innlent Egill telur eitt og annað óljóst við bílatilboð Ástþórs Innlent Besta veðrið um verslunarmannahelgina? Veður Maður hætt kominn eftir ísbjarnarárás Innlent Fleiri fréttir „Hér er um fullkomlega eðlileg viðskipti að ræða“ Hlý og góð tilfinning að mæta á Bessastaði Borinn niður af klettaborginni VG mælist með 3,5 prósent Furðar sig á kjötafurðarstöðvunum Frú forseti, klútaveisla og undrandi bændur Fólk keyri ekki fyrr en tólf tímum eftir síðasta sopa „Mýkri leiðir í hörðum heimi“ Tjá sig ekki eftir fullyrðingar ráðuneytisins í nafnabreytingarmálinu Máttu ekki synja kvikmyndagerðarmanni um eftirvinnslustyrk Fólk á förnum vegi: Ein felldi tár og önnur mjög spennt fyrir Höllu Halla Tómasdóttir orðin sjöundi forseti lýðveldisins „Covid virðist vera komið til að vera“ Allt að verða klárt fyrir embættistöku sjöunda forseta lýðveldisins Árásum gegn opinberum starfsmönnum fari fjölgandi Embættistaka, Covid-19 og hótanir í garð lögreglu Aukinn viðbúnaður til að bregðast við eggvopnaógn Rafbílar rétta aðeins úr kútnum eftir dýfu „Ég hef látið orð út úr mér sem hefðu átt að vera ósögð“ Fjórðungur landsmanna sótti símenntun í fyrra Íbúum með skráð lögheimili í Grindavík fækkað um tæpan þriðjung Vandræðasaga Helga: Skortur á hommum, meint „kerlingartussa“ og Facebook-þumallinn Ók á mann og stakk af Rangt að ráðuneytið hafi gefið út leiðbeiningar um kenninöfn Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílveltu í Sjálandi Hefði horft á lokakvöldið hefði Hera Björk komist áfram Bíll hafnaði utan vegar í Hafnarfirði Guðni lítillátur þegar hann sagði að allt myndi bjargast án hans Allt klárt hjá lögreglu og sjálfboðaliðum fyrir þjóðhátíð Guðni um bílakaupin umdeildu: „Myndir þú kaupa bíl af svona fólki?“ Sjá meira