Innlent

Fjölmiðlar láti af gagnrýninni

Herjólfur hefur aflýst fimm ferðum af 266 síðan Landeyjahöfn var opnuð í maí.
Herjólfur hefur aflýst fimm ferðum af 266 síðan Landeyjahöfn var opnuð í maí. Mynd/Óskar P. Friðriksson
Fjölmiðlar og aðrir eru beðnir um að láta af óvæginni gagnrýni á ferðir Herjólfs í Landeyjahöfn í yfirlýsingu sem Eimskip sendi frá sér í gær.

Þar segir að að allt tal um að Eimskipafélagið leggist gegn siglingum til Landeyjahafnar sé alrangt. Fréttablaðið hafði það eftir heimildum í vikunni að vilji væri fyrir því hjá Eimskipi að loka höfninni tímabundið í nokkra mánuði næsta vetur.

Í yfirlýsingunni segir jafnframt að aðeins fimm ferðir af 266 hafi fallið niður frá því höfnin opnaði eftir nokkurt hlé þann 4. maí síðastliðinn.

- sv




Fleiri fréttir

Sjá meira


×