Erlent

Spennuþrungið andrúmsloft

Ásgeir Helgi Þrastarson
Ásgeir Helgi Þrastarson Mynd úr einkasafni
Ástandið í borginni utan átakasvæðanna einkennist af spennu, segir Lundúnabúinn Ásgeir Helgi Þrastarson í samtali við Fréttablaðið. Ásgeir býr með kærustu sinni á stúdentagarði skammt suður af Tottenham og segir ófremdarástand ríkja í hverfunum allt um kring.

„Það er mikið búið að vera að gerast í Hackney sem er nokkuð nálægt okkur. Þar hefur verið kveikt í bílum og rúður brotnar í búðum. Svo skilst okkur á því sem við lesum á Twitter að það sé líka allt að kvikna upp í Islington sem er rétt hjá. Þannig að þetta virðist allt vera að stefna til okkar núna.“

Ásgeir segir að ástandið sé enn rólegt hjá þeim fyrir utan að verslanir í hverfinu lokuðu fyrr en venjulega. Hann telur þó ólíklegt að óeirðirnar færist yfir í götuna þeirra. „Ég held við séum á ágætum stað, því að hjá okkur er ekki mikið af búðum og öðru sem sótt er í að eyðileggja, en maður veit aldrei hverju þetta fólk tekur upp á.“ - þj




Fleiri fréttir

Sjá meira


×