Erlent

Myrtu fjörutíu leigubílstjóra

Mynd/AP
Íraska lögreglan hefur fundið gröf með líkamsleifum 40 leigubílstjóra í bænum Dujail sem er í um 60 km fjarlægð frá Bagdad. Leigubílstjórarnir voru fórnarlömb bílaþjófagengis sem á undanförnum tveimur árum hafa rænt 40 leigubílstjórum í Bagdad og síðan drepið þá.

Þrír menn hafa verið handteknir vegna málsins. Lögreglan telur að foringi bílaþjófanna hafi komið í bílageymslu leigubíla og beðið bílstjóra að aka sér til Dujail. Þar hafi félagar hans beðið, drepið bílstjórana, kastað líkinu í fjöldagröf og selt leigubílinn. -ibs




Fleiri fréttir

Sjá meira


×