Rannsóknin er orðin unglingur 31. ágúst 2011 12:30 Linda Björk hefur unnið mikið að verkefninu við stofuborðið heima og gleðst yfir að það skuli nú vera komið í eina bók. Fréttablaðið/Vilhelm "
Ég byrjaði á rannsókninni 1995 þannig að hún er orðinn unglingur," segir Linda Björk Ólafsdóttir lyfjafræðingur um doktorsverkefni sitt sem hún ver í dag við Háskóla Íslands. Það fjallar um meltingarfærakvilla. Helstu niðurstöður þess sýna að ristilkrampi er mun algengari kvilli hér á landi meðal ungs fólks en annars staðar á Vesturlöndum, einkum meðal kvenna. Linda Björk er lyfjafræðingur í grunninn þótt hún starfi ekki við þá grein heldur í eigin rekstri, óskyldum heilbrigðisgeiranum. Hún kveðst því hafa unnið að doktorsritgerðinni í hjáverkum, oftast á stofuborðinu heima og gleðst yfir því að hún skuli komin í eina bók. En hvað varð til þess að hún lagði í þessa vinnu? "Þetta byrjaði þannig að kandídatsverkefni mitt í lyfjafræðinni var rannsókn á tíðni ristilkrampa meðal ungs fólks á Íslandi. Í framhaldinu setti ég upp stærri rannsókn, ásamt tveimur læknum og við keyrðum hana af stað 1996. Risastór spurningalisti var sendur út til 2.000 manns sem valdir voru af handahófi. Listinn fór til sama hóps tíu árum seinna og 800 manns svöruðu báðum listunum. Rannsóknin kemur inn á marga þætti en kvillarnir sem ég er að rannsaka skapa langvarandi verki og vanlíðan þó enginn deyi af þeim. Margt bendir til að þeir séu tengdir streitu," segir Linda Björk og bætir við að lítið sé um lyf sem virki á þessa sjúkdóma. "Besta ráðið er að auka þekkingu meðal fólks þannig að það læri inn á einkennin og breyti lífsstílnum," segir hún. Þegar hafa birst greinar um niðurstöður rannsóknar Lindu Bjarkar og hún segir þær hafa vakið eftirtekt í alþjóðasamfélaginu. "Það eru í raun bara þrjár aðrar rannsóknir sem hafa verið birtar um svipað efni í heiminum á síðustu árum. Þetta er sú fjórða sem er svona víðtæk og hægt er að bera saman við þær." Andmælendur við vörnina í dag verða Lars Agréus, prófessor við Karolinska Institutet í Stokkhólmi, og dr. Guðjón Kristjánsson, sérfræðingur í meltingarlækningum og yfirlæknir við Speglunardeild Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri. Linda Björk segir Agréus þekktan á sínu sviði og hafa birt eina af þeim þremur rannsóknum sem hún getur borið sína saman við. Að sjálfsögðu ætlar Linda Björk svo að gera sér dagamun þegar doktorsgráðan er í höfn. "Það verður veisla fyrir fjölskyldu og vini, alla sem hafa komið að þessu verki og fagna með mér þessum áfanga," segir hún og bætir við: "Þetta verður skemmtilegur dagur." gun@frettabladid.is
Mest lesið Þyrlan í vandræðum með að sækja mann sem steig í hver Innlent Troðfullt á bílastæði við þjóðveginn og löng bið fram undan Innlent Farangurinn varð eftir og þurfa að keyra hringinn til að ná í hann Innlent Hefur áhyggjur af viðhorfi Viðskiptaráðs Innlent Gæti orðið ófært í Þórsmörk Innlent Halla verði að upplýsa um bílakaupin Innlent Lögreglan lýsir eftir My Ky Le Innlent Frumvarp um sviptingu verndar lítur dagsins ljós í haust Innlent Ferðamenn festu bíl á Fjallabaksleið nyrðri Innlent Skökk gangstéttarhella eyðilagði líf Ragnheiðar Innlent Fleiri fréttir Síðasta ávarpið í embætti: „Þið eruð geggjuð!“ Rannsaka möguleika til kolefnisförgunar í Hvalfirði „Þó nokkur aðgerð“ að sækja göngumanninn sem steig í hver Hringvegurinn opinn á ný Öll fjögur hlaupin undir Mýrdalsjökli komið að óvörum RAX flaug yfir jökulhlaupssvæðið Smíðaði stærstu skeifu heims úr 2.852 skeifum Troðfullt á bílastæði við þjóðveginn og löng bið fram undan Farangurinn varð eftir og þurfa að keyra hringinn til að ná í hann Vatnsflaumur og vísindarannsóknir í Hvalfirði Kunningi lögreglunnar grunaður um alvarlega líkamsárás Þyrlan í vandræðum með að sækja mann sem steig í hver Hefur áhyggjur af viðhorfi Viðskiptaráðs Sækja slasaðan göngumann í Kerlingarfjöll Ferðamenn festu bíl á Fjallabaksleið nyrðri Leita skýringa á stærð hlaupsins sem er nánast búið Hringvegurinn líklega lokaður til kvölds „Það taka þessu allir með stóískri ró“ Jökulhlaup, deilur um grunnskólamál og sundkappi Vegagerðin og deilur um menntakerfið Frumvarp um sviptingu verndar lítur dagsins ljós í haust Mótmæla brottvísun Venesúelamanna við Hallgrímskirkju Hlaupið minnkað verulega en jökullinn skelfur enn Gæti orðið ófært í Þórsmörk Kýldi leigubílstjórann og borgaði ekki Lögreglan lýsir eftir My Ky Le Ekkert bendi til að hlaupið sé afleiðing eldgoss Halla verði að upplýsa um bílakaupin Meira en nóg að gera á Herjólfi í sumar Óljóst hvað veldur svo stórum jökulhlaupum Sjá meira