Innlent

Pallbíll hafnaði á tré við Útlagann

Mynd úr safni / Vilhelm
Karlmaður var fluttur á sjúkrahús eftir að hann missti stjórn á pallbíl sínum og hafnaði á tré. Slysið átti sér stað í nágrenni Útlagans á Flúðum um hádegisbilið í dag en bíllinn varð stjórnlaus í beygju þar vegna mikils kraps á veginum.

Maðurinn er ekki talinn alvarlega slasaður en kann kenndi sér eymsla fyrir brjósti og í baki. Bíllinn er mikið skemmdur og að öllum likindum ónýtur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×