Erlent

Skotárás í Bandaríkjunum: Leita að vitorðsmanni

Fjöldi fólks kom saman í gærkvöldi, að staðartíma, til að biðja fyrir Giffords og þeim sem liggja særðir.
Fjöldi fólks kom saman í gærkvöldi, að staðartíma, til að biðja fyrir Giffords og þeim sem liggja særðir. Mynd/AFP
Gabrielle Giffords þingmaður Arizona á Bandaríkjaþingi liggur mikið særð á sjúkrahúsi í Tuscon í Arizona eftir skotárásina í gærdag. Bænavaka var haldin fyrir utan skrifstofu Giffords í borginni í gærkvöldi til að minnast þeirra sem misstu lífið í skotárásinni og fyrir bata þeirra sem særðust.

Meðal þeirra sex sem féllu í skotárásinni er formaður Fylkisdóms Arizona, John Roll, níu ára stúlka og einn aðstoðarmanna Giffords. Skotárásin beindist fyrst og fremst að þingmanninum sem hafði boðað til samtalsfundar með kjósendum fyrir utan verslunarmiðstöð í Tuscon.

Lögregluyfirvöld hafa nafngreint árásarmanninn og segja hann heita Jared Lee Loughner, sem er tuttugu og tveggja ára gamall en hann var handtekinn eftir að fundargestir yfirbuguðu hann. Loughner komst mjög nálægt Giffords og skaut hana í höfuðið af stuttu færi og fór byssukúlan í gegnum höfuð hennar og heila. Síðan hóf hann skothríð á aðra nærstadda þar til sex manns lágu í valnum og tólf særðust.

Lögreglustjórinn í borginni telur að Loughner hafi átt sér vitorðsmann og er hans nú leitað. Jafnframt segir hann að Loughner eigi að öllum líkindum við geðræn vandamál að stríða.

Barack Obama forseti Bandaríkjanna segir árásina í gær sorglegan atburð í sögu Bandaríkjanna. Hann hefur fyrirskipað forstjóra Alríkislögreglunnar að hafa yfirumsjón með rannsókn málsins.

Giffords vann nauman sigur á hægriöfgafulltrúa Te-hreyfingarinnar innan Republikanaflokksins í þingkosningum í nóvember síðast liðnum. Hún telst til hógværari afla innan Demókrataflokksins, en studdi umdeildar breytingar forsetans á heilbrigðiskerfinu sem náðu í gegn á síðasta ári. Fulltrúum Te-hreyfingarinnar er hins vegar einstaklega í nöp við þær breytingar. Í kosningabaráttunni var ráðist á skrifstofu Giffords í Tuscon og skemmdarverk unnin. Þingmenn á Bandaríkjaþingi njóta mikillar verndar á þinginu en þegar þeir ferðast um á heimaslóðum hafa þeir nánast enga vernd.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×