Ekki hægt að rekja atkvæði án samsæris 4. febrúar 2011 04:00 Verkfræði- og náttúruvísindasvið Háskóla Íslands stóð í gær fyrir málþingi um ógildingu stjórnlagaþingskosninganna. Þorkell Helgason stærðfræðingur, sem náði kjöri, fer hér yfir aðferðafræði kosninganna. Fréttablaðið/Arnþór
Samsæri hefði þurft til að rekja mætti atkvæðagreiðslu í stjórnlagaþingskosningunum sem fram fóru í lok nóvember og Hæstiréttur ógilti nýverið með úrskurði sínum. Fram kom í erindi Jóhanns P. Malmquist, prófessors í tölvunarfræði og ráðgjafa landskjörstjórnar við kosningarnar, að til hefði þurft að koma samsæri að minnsta kosti tveggja. „Einhver þyrfti að vera í kjördeildinni og skrifa niður númerið á kjörseðlinum og nafnið á þeim sem fékk hann. Og svo þarf að komast í samband við einhvern á talningarstað sem nálgast gæti atkvæðið, eða múta einhverjum sem aðgang hefði að gagnagrunninum,“ sagði Jóhann á málþingi sem Verkfræði- og náttúruvísindasvið Háskóla Íslands stóð fyrir í Þjóðminjasafninu í gær um þá ákvörðun Hæstaréttar að ógilda kosningarnar til stjórnlagaþingsins. Jóhann benti á að í raun væri frekar ástæða til að hafa áhyggjur af leynd alþingiskosninga, því í þeim gæti einstaklingur látið undan þrýstingi eða selt atkvæði sitt og svo auðkennt atkvæðið með því að strika út frambjóðendur og breyta röð þeirra neðst á seðlinum eftir fyrir fram ákveðnu kerfi. Þorkell Helgason, stærðfræðingur og fyrrverandi orkumálastjóri, taldi helsta ágalla kosninganna að kjósendur hefðu verið beðnir um að velja of marga frambjóðendur. Eins hefði ekki, í þeim tilvikum þar sem kjósendur gerðu mistök, átt að ógilda val þeirra á kjörseðlinum á eftir mistökunum. Þorkell vann áður að skipulagi kosninga með því fyrirkomulagi sem viðhaft var við stjórnlagaþingskosninguna, en hvarf frá verkefninu þegar hann ákvað að bjóða sig fram sjálfur. Hann hefur farið yfir gögn um framkvæmd kosningarinnar og upplýsti í erindi sínu að þrátt fyrir að hann hefði talið vænlegra að hver kjósandi veldi ekki nema að hámarki 10 frambjóðendur hefði verið hægt að raða í 25 sæti. Í máli hans kom engu að síður fram að um 30 prósent kjósenda hefðu raðað í allar 25 línur kjörseðilsins. Meðaltalið hefði hins vegar verið 14,8. „Og ég þori að fullyrða að það er heimsmet,“ sagði hann. Þorkell benti á að víða væri notast við kosningakerfið sem var í stjórnlagaþingskosningunni, en hér hafi verið farið að skoskri fyrirmynd. Útfærslan væri hins vegar þekkt frá 19. öld. Hér hefði í raun tekist vel til, mun færri atkvæði hefðu verið ógild en í „hefðbundnum kosningum“. Þá vísaði hann til þess að Írar hefðu í tvígang hafnað því í kosningum að taka upp annað kosningakerfi en þetta. olikr@frettabladid.is
Mest lesið Þakklát fyrir þrjósku hundsins Innlent Gætu þurft að loka Fjölskyldulandi Innlent Einbeitti sér alfarið að Svedda Tönn Innlent „Ég held að það þurfi að koma böndum á þetta“ Innlent „Hélt ég væri að fara að drepast. Þú heyrir i sprengjunni koma“ Erlent Handtökuskipun gefin út vegna Nord Stream skemmdarverkanna Erlent Milla hætt hjá Willum Innlent Hamas segjast ekki munu senda fulltrúa til viðræðna á morgun Erlent „Þetta gæti bara byrjað hvenær sem er“ Innlent Íbúi á sjötugsaldri lést í brunanum við Amtmannsstíg Innlent Fleiri fréttir Heildarakstur í þjóðvegakerfi nærri tvöfaldast á tuttugu árum „Ég held að það þurfi að koma böndum á þetta“ Þakklát fyrir þrjósku hundsins Gætu þurft að loka Fjölskyldulandi „Þetta gæti bara byrjað hvenær sem er“ Einbeitti sér alfarið að Svedda Tönn Finnst líklegt að vindorka verði þriðja stoðin í orkukerfi landsins Íbúi á sjötugsaldri lést í brunanum við Amtmannsstíg Milla hætt hjá Willum Fimm milljarðar í húsnæðisúrræði fyrir hælisleitendur Lögreglan leitar að stolnum Volvo Svipaður hlátur á öllum upptökunum Viðskiptaráð biður ráðuneytið um niðurstöður námsmats Telja áform um uppbyggingu vindmyllugarða verulegt áhyggjuefni Skiptu um síma og símkort eins og nærbuxur til að hylja slóð sína Starfsmenn Veðurstofunnar í biðstöðu og kvikusöfnun heldur áfram Sex sóttu um embætti forstjóra Náttúrufræðistofnunar Bruni í miðbænum og Landvernd slæst við vindmyllur Mikill og dökkur reykur í íbúðinni Einn fluttur á slysadeild eftir bruna á Amtmannsstíg „Það er öllum brögðum beitt til að koma vörunum sem víðast“ Þurfi að sýna skynsemi við uppbyggingu vindorkuvera Fluttur á sjúkrahús eftir að bát hvolfdi Ekki óyggjandi sönnun fyrir meintu dýraníði blóðbónda að mati MAST Hringveginum lokað við Borgarnes vegna elds í vörubíl Malarvagn kramdi bílstjórahús flutningabíls Ferðamenn í báðum bifreiðum Landsvirkjun skrefi nær því að reisa fyrsta vindorkuverið Rannsaka hugsanleg veikindi af völdum E.coli Makaði tómatsósu á útidyrahurð nágranna sinna Sjá meira