Erlent

Þjálfa mýs til að leita að fíkniefnum og sprengjum

Vísindamenn í Ísrael hafa þjálfað mýs til þess að þefa uppi fíkniefni og sprengjur á flugvöllum.

Í umfjöllun um málið í tímaritinu New Scientist kemur fram að vísindamennirnir segja að mýsnar nái mun betri árangri en hundar eða gegnumlýsingartæki við að finna þessa hluti.

Við prófanir á getu músanna í stórmarkaði í Tel Aviv kom í ljós að músunum tókst að þefa uppi 22 manns með gerfisprengjur innanklæða úr hópi 1.000 manns sem fóru um stórmarkaðinn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×