Megn óánægja á meðal frjálslyndra jafnaðarmanna Jón Hákon Halldórsson skrifar 30. desember 2011 10:11 Megn óánægja ríkir á meðal hægrisinnaðra Samfylkingarmanna með hlut Árna Páls. mynd/ vilhelm.
Megn óánægja ríkir á meðal frjálslyndra jafnaðarmanna, það er að segja þeirra hægrisinnuðustu í Samfylkingunni, með þá ákvörðun leiðtoga ríkisstjórnarinnar, þeirra Jóhönnu Sigurðardóttur og Steingríms J. Sigfússonar, að víkja Árna Páli Árnasyni úr embætti efnahags- og viðskiptaráðherra. Félag frjálslyndra jafnaðarmanna, sem á fulltrúa í flokksstjórn Samfylkingarinnar, hittist í gær og fór yfir stöðu mála. Þar var Árni Páll Árnason sjálfur um stund. Fundurinn var ekki boðaður sérstaklega til að ræða stöðuna, heldur var um að ræða jólaboð sem hafði verið fyrirfram ákveðið og tilviljun ein réð því að það bar upp á sama dag og fréttir af breytingum í ríkisstjórninni bárust fjölmiðlum. Þeir félagar í Félagi frjálslyndra jafnaðarmanna sem Vísir hefur talað við vilja ekkert láta uppi um hvað fór fram á fundinum, en segja að beðið sé eftir því hvað Jóhanna Sigurðardóttir, formaður Samfylkingarinnar, muni segja á flokkstjórnarfundinum í dag. Á meðal þeirra sem aðild eiga að Félagi frjálslyndra jafnaðarmanna er Margrét Björnsdóttir, formaður framkvæmdastjórnar Samfylkingarinnar, Vilhjálmur Þorsteinsson, gjaldkeri Samfylkingarinnar, auk fleiri manna. Samkvæmt heimildum Vísis er sú ákvörðun að víkja Árna Páli ekki síst til komin vegna samskiptaörðugleika Steingríms J. Sigfússonar fjármálaráðherra og Árna Páls í ríkisstjórn.
Mest lesið Lýsa yfir hættustigi Innlent Neyðarþyrluflug með ferðamann á Jökulfjörðum „vísir að misnotkun“ Innlent Skákar Trump í skoðanakönnun Erlent Féllu ofan í jökullón Sólheimajökuls Innlent Hraunflæði það hratt að ekki yrði hlaupið undan því Innlent Siggi Kristins gítarleikari og bílaspekúlant er allur Innlent Myndband sýnir aðdraganda árásarinnar á Krít Innlent Trump kvartar formlega vegna yfirtöku Harris á sjóðum Biden Erlent Sagði Harris vanhæfa sökum barnleysis Erlent Segir tímabært að Ísland stokki spilin upp á nýtt Innlent Fleiri fréttir Hættustig almannavarna og sögulegt ávarp Netanjahú Loftefni hrundi í húsi sem fæst ekki uppkeypt Reiðhjólamaður féll af kletti við Jökulsárgljúfur Sprungur í veggjum, skakkir dyrakarmar og börnin færð í Ármúlann Þórarinn selur ekki sinn hlut í Búsæld Neyðarþyrluflug með ferðamann á Jökulfjörðum „vísir að misnotkun“ Þrettán vilja stýra ráðuneyti Svandísar Myndband sýnir aðdraganda árásarinnar á Krít Halla heimsótti Guðna Féllu ofan í jökullón Sólheimajökuls Lýsa yfir hættustigi Söngskólinn í Reykjavík leitar nýs húsnæðis Viðvarandi vætutíð og áfram rigning í kortunum „Auðvitað mjög margir sem eru óttaslegnir“ Arnar Þór íhugar að stofna stjórnmálaflokk Verðbólga eykst og áfram rigning í kortunum Kæra vararíkissaksóknara vegna ummæla um innflytjendur Siggi Kristins gítarleikari og bílaspekúlant er allur Hraunflæði það hratt að ekki yrði hlaupið undan því Erfðabreytileikar hafa áhrif á DNA metýleringu Segir tímabært að Ísland stokki spilin upp á nýtt Leiðindi í lyfjaverslun og æsingur í miðborginni Fráleitt að vernda glæpamenn frá eigin nafni Ekki æskilegt að hafa fólk í bænum Röng skilaboð að Yaris borgi það sama og stór jeppi Man ekki eftir öðru eins í sinni búskapartíð Gríðarlegir hagsmunir í húfi fyrir sjávarútveg að Skaginn 3X lifi Mikil hætta á gosi í Grindavík og óvissa í flugrekstri Geta ekki selt hús því ókunnugt fólk er með skráð lögheimili í því Aukin hætta á eldgosi innan bæjarmarka Grindavíkur Sjá meira