Innlent

Skólinn rýmdur samkvæmt eldvarnaaætlun

Laugalækjarskóli í morgunsárið.
Laugalækjarskóli í morgunsárið.

Jón Páll Haraldsson, aðstoðarskólastjóri í Laugalækjarskóla, segir nemendur hafa staðið sig með prýði þegar skólinn var rýmdur í morgunn. Eldur kom upp í rafmagnsdós, sem bráðnaði og barst reykjalykt um skólann.

„Slökkviliðið brást mjög hratt við. Þetta gerist um korter í níu í morgun og þeir eru farnir um hálftíma síðar. Við rýmdum skólann samkvæmt eldvarnaráætlun og stóðu nemendur sig afar vel."

Jón Páll segir að þarna hafi reynt á viðbragðsáætlun skólansog þó að auðvitað hafi sumum brugðið hafi ekkert farið úrskeiðis. Skólahald er nú með eðlilegum hætti.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×