Viðskiptafræði og lögfræði vinsælustu háskólafögin 21. janúar 2011 09:05 Önnum kafnir nemendur á Háskólatorgi Háskóla Íslands
Ef einstakar námsbrautir á háskólastigi eru skoðaðar eru flestir nemendur skráðir á svið viðskiptafræða. Þar voru skráðir 2.452, þar af 54,4% konur. Næst fjölmennasta námssviðið á háskólastigi er lögfræði en þar voru skráðir til náms 1.387, þar af 53,2% konur. Fjöldi nemenda í viðskipta- og lögfræði er svipaður og fyrir ári síðan. Viðskiptagreinar og lögfræði eru einu námsbrautirnar á háskólastigi þar sem fjöldi nemenda náði einu þúsundi. Þetta kemur fram í samantekt Hagstofunnar.Tæplega 50 þúsund í framhalds- og háskóla Haustið 2010 voru skráðir nemendur á framhalds- og háskólastigi 47.240. Í framhaldsskóla voru skráðir 27.351 nemendur og 19.889 nemendur í háskóla. Skráðum nemendum fækkaði um 3,1% frá fyrra ári en það er í fyrsta skipti sem nemendum fækkar milli ára síðan Hagstofa Íslands hóf að birta tölur um skráða nemendur haustið 1997. Fækkun nemenda milli ára var öll á framhaldsskólastigi en þar fækkaði skráðum nemendum um 7,9%. Nokkur fjölgun var hins vegar á háskólastigi eða um 4,3%. Fækkun nemenda skýrist fyrst og fremst af samdrætti í fjarnámi og öldungadeildum á framhaldsskólastigi. Þá fækkaði nemendum grunnskóla sem sóttu nám í framhaldsskólum umtalsvert og voru um fjórðungur fjölda grunnskólanemenda í framhaldsskólum haustið 2008. Konur eru í meirihluta Konur voru umtalsvert fleiri en karlar meðal skráðra nemenda eða 5.396 fleiri. Alls stunduðu 26.318 konur nám í framhaldsskólum og háskólum á móti 20.922 körlum. Konur voru 55,7% nemenda á öllum skólastigum ofan grunnskóla. Hlutur karla var 44,3% en karlar voru 43,5% nemenda haustið 2009. Körlum fjölgaði hlutfallslega í nemendahópnum þar sem konum fækkaði meira en körlum á milli ára. Þegar skipting kynja er skoðuð eftir skólastigum samkvæmt íslensku menntunarflokkuninni ÍSNÁM2008 voru konur 51,9% nemenda á framhaldsskólastigi, 34,6% nemenda á viðbótarstigi, 62,3% nemenda á háskólastigi og 58,3% nemenda á doktorsstigi. Bóknám á framhaldsskólastigi og fræðilegt nám á háskólastigi Í bóklegt nám á framhaldsskólastigi voru skráðir 17.938 nemendur en í starfsnám voru skráðir 9.044 nemendur. Því voru 66,5% nemenda á framhaldsskólastigi skráðir í einhvers konar bóknám en 33,5% nemenda skráðir í einhvers konar starfsnám. Á háskólastigi voru 97,9% nemenda skráðir í fræðilegt háskólanám en 2,1% í starfsmiðað háskólanám. Doktorsnemum fjölgaði um 168 frá fyrra ári og eru nú 482 í námi á 47 fræðasviðum. Yfirlitstölur um heildarfjölda skráðra nemenda í framhalds- og háskólum frá árinu 2004 til 2010 má finna í Hagtíðindum. Einnig sundurliðaðar tölur eftir skólastigi, kennsluformi og tegundum skóla fyrir sama tímabil. Loks má finna upplýsingar um fjölda nemenda eftir námsstöðu þeirra. Hagtíðindi má nálgast á vef Hagstofu Íslands.
Mest lesið Halla Hrund sótti ekki um nýja forstjórastöðu Innlent Allt með kyrrum kjörum þrátt fyrir reyk og ljóstýru Innlent Gena Rowlands er látin Erlent Fastur á leigumarkaði með verðlaust hús í Grindavík Innlent Fundu ferðamennina um hálf eitt í nótt Innlent Fjögurra daga gamlir tvíburarnir fórust á meðan faðirinn brá sér frá Erlent Rannsaka innbrot og mögulega vatnsmengun á herstöð í Þýskalandi Erlent Verkfræðingar segja vald SA „óeðlilega mikið“ Innlent Leggur til að hjólhýsabyggðin verði við Rauðavatn eða í Gufunesi Innlent Leita að göngumanni í Kerlingarfjöllum Innlent Fleiri fréttir Leggur til að hjólhýsabyggðin verði við Rauðavatn eða í Gufunesi Verkfræðingar segja vald SA „óeðlilega mikið“ Fastur á leigumarkaði með verðlaust hús í Grindavík Halla Hrund sótti ekki um nýja forstjórastöðu Fundu ferðamennina um hálf eitt í nótt Ekið heim eftir „smá uppsteyt“ í miðborginni Allt með kyrrum kjörum þrátt fyrir reyk og ljóstýru Gaukarnir gista og fá snyrtingu Leita að göngumanni í Kerlingarfjöllum Óttast um velferð íbúa og höfðar til skynsemi þeirra Tryggja þurfi að vindorkan haldist í höndum þjóðarinnar Bótagreiðslur til Íslendinga almennt hærri Á annað hundrað kvenna bíða eftir minni brjóstum Setti hraðamet í heiðurssundi fyrir syni Eddu Bjarkar Ósammála um hvort árekstur hefði orðið Gripin með óhrein peningabúnt í Leifsstöð Stíga annað stórt skref að virkjun við Búrfell Óvenjulegur grafreitur reistur á Seltjarnarnesi Eyddu sprengju úr seinni heimsstyrjöldinni í Hlíðarfjalli Halldór Bragason lést í eldsvoðanum Enginn vindmyllugarður án bættra vega Orsök veikindanna enn á huldu Gísla Pálma refsað fyrir akstur undir áhrifum Kynhlutlaus klósett orðin að lögum Á hlaupum yfir hraunið með hræ í kjaftinum Vindorka í Dölunum og iðrakveisa á Rjúpnavöllum Stal gaskúti og stakk honum í Wolt-tösku Skoða að kæra útgáfu virkjanaleyfis fyrir Búrfellslund Heilsugæslan skipuleggur sýnatökur vegna e. coli mengunar Greiddu 47 milljónir fyrir 175 hjálma fyrir leiðtogafundinn Sjá meira