Innlent

Á 127 kílómetra hraða á Miklubraut

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Karlmaður á fertugsaldri var stöðvaður í umferðinni í gærkvöld þegar bíll hans mældist á 127 kílómetra hraða á Miklubraut, við Lönguhlíð. Viðkomandi, sem hefur áður verið staðinn að hraðakstri, var sviptur ökuréttindum til bráðabirgða.

Lögreglan stöðvaði líka för þriggja ökumanna á höfuðborgarsvæðinu í gær sem grunaðir eru um að hafa verið undir áhrifum fíkniefna. Þetta voru tveir karlar á þrítugsaldri og kona um fertugt. Einn þessara ökumanna hafði þegar verið sviptur ökuleyfi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×